Bæjarráð nr. 1232

1232. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn  á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 23. júní 2010 og hófst hann kl. 17:00


Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson (GLP), Bryndís Gunnlaugsdóttir (BG), Kristín María Birgisdóttir (KMB) og Páll Valur Björnsson (PVB).

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, fjármálastjóri

 

Dagskrá:

1.  1006043 - Kosning formanns bæjarráðs
 Lagt er til að Guðmundur L. Pálsson verði formaður bæjarráðs.
                 Samþykkt samhljóða.
 
2.  1006034 - Styrkbeiðni frá sunddeild UMFG
 Fjármálastjóra falið að óska eftir sundurliðun kostnaðar og leggja fyrir bæjarráð.
   
3.  1006038 - Boð um úttekt á fjármálalegri stöðu sveitarfélagsins í kjölfarsveitarstjórnarkosninga
 Lagt fram.
   
4.  1006039 - Ráðning í stöður stjórnenda og kennara í leikskólum án auglýsinga
 Lagt fram.
   
5.  1006025 - Sumarvinna ungmenna 17-18 ára.
 Bæjarráð áréttar að allt skólafólk 17 - 18 ára eiga kost á vinnu hjá bænum.
   
6.  1006027 - Beiðni um endurnýjun á samningi vegna organista Grindavíkurkirkju
 Bæjarráð felur formanni bæjarráðs að ræða við formann sóknarnefndar.
   
7.  1006023 - Kaupleigusamningur, Glæsivellir 8
 Bæjarráð samþykkir tilboðið og fjármálastjóra falið að skrifa undir samning.
   
8.  1004012 - Örútboð á talsíma og interneti fyrir Grindavíkurbæ
 Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Símans í talsíma og internetþjónustu.
   
9.  1006013 - Skyldur sveitarfélaga samkvæmt janfréttislögum nr. 10/2008.
 Félagsmálaráði er falið að sinna þessu hlutverki þangað til búið er að yfirfara stjórnskipun bæjarins.
   
10.  0912058 - Tjaldsvæðið og sjóarinn síkáti 2010
 Lagt fram. Bæjarráð þakkar öllum þeim er stóðu að hátíðinni fyrir vel heppnaða hátíð.
   
11.  1006009 - Kjör fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 Lagt fram. Fjármálastjóra falið að senda niðurstöður kjörsins til skrifstofu sambandsins.
   
12.  0904052 - Kostnaðaráætlun vegna endurnýjun stofnæðar vatnsveitu austur í Þ.hverfi
 Bæjarráð samþykkir að taka lægsta tilboðinu, frá GG Sigurðssyni að fjárhæð 17.314.500, sem er 72,8% af kostnaðaráætlun. Tæknideild falið að sjá um eftirlit með verkinu.
   
13.  1005017 - Gjaldskrá tjaldsvæðis sumar 2010
 Bæjarráð samþykkir gjaldskrá tjaldsvæðis árið 2010
   
14.  1004028 - Erindi frá knattspyrnudeildinni.
 Bæjarráð óskar eftir því að fá forsvarsmenn knattspyrnudeildar á næsta fund bæjarráðs.
   
15.  1005009 - Úrsögn Reykjanesbæjar úr Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf.
 Bæjarráð samþykkir að úrsögn Reykjanesbæjar verði frestað um 6 mánuði.
   
16.  1005013 - Styrktarsjóður EBÍ.
 Lagt fram.
   
17.  1005018 - Ósk um styrk til tónleikahalds.
 Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
   
18.  1005029 - Ósk um þáttöku í húsaleigu í Landsbanka
 Bæjarráð óskar eftir því að Ólafur Jón komi á næsta bæjarráðsfund.
   
19.  1005037 - Beiðni um umsögn frá félags- og tryggingamálanefnd Alþingis, um frumvarp til laga um orlof húsmæðra, 77. mál
 Lagt fram.
   
20.  1005039 - Tilkynning um endanlega úthlutun framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2010
 Lagt fram. Fjárhæðin er 17.220.000 kr. og félagsmálastjóra falið að yfirfara gögnin.
   
21.  1005040 - Heildaryfirlit yfir framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
 Lagt fram.
   
22.  1005041 - Átaksverkefni "Fegrun sveitarfélags", samþykkt á fundi vinnumálastofnunar.
 Vísað til félagsmálastjóra.
   
23.  1005043 - Skotveiðifélagið Markmið leitar eftir aðstoð og stuðning.
 Málinu er vísað til tæknideildar.
   
24.  1005044 - Viljayfirlýsing um framhaldsnám í Grindavík haustið 2011.
 Lagt fram.
   
25.  1005046 - Tilkynning um sölu á hlutabréfum í HS Orku.
 Grindavíkurbær fellur frá forkaupsrétti.
   
26.  1005047 - Orkulindir og Suðurlindir.
 Bæjarráð tekur jákvætt í að málið verði rætt í stjórn Suðurlinda.
   
27.  1005051 - Ósk um flýtimeðferð um framkvæmdarleyfi fyrir borun
 Bæjarráð vísar málinu til tæknideildar.
   
28.  0910029 - Samningur um akstur milli Grindavíkur og Reykjanesbrautar í veg fyrir SBK rútuna.
 Lagt fram.
   
29.  1005016 - Beiðni um umsögn frá samgöngunefnd Alþingis, um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2009-2012, 582. mál.
 Lagt fram.
   
30.  1005053 - Beiðni um umsögn um tímabundið áfengisleyfi vegna Sjóarans síkáta
 Lagt fram.
   
31.  1005054 - Beiðni um umsögn vegna tímabundis áfengisleyfis
 Lagt fram.
   
32.  1005052 - Náma staðsett í Melhól við Grindavíkurveg
 Bæjarráð felur forstöðumanni tæknideildar og fjármálastjóra að svara erindinu.
   
33.  1005010 - 392. fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf.
 Fundargerðin er lögð fram.
   
34.  1005011 - 610. fundur í stjórn Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.
 Fundargerðin er lögð fram.
   
35.  1005050 - 294. fundur bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar, 26. maí 2010
 Lagt fram.
   
36.  1005025 - 218. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, þann 17. mars 2010, kl. 16.00.
 Fundargerðin er lögð fram.
   
37.  1005024 - Aðalfundur Málræktarsjóðs
 Lagt fram.
   
38.  1005030 - 219. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, 6.maí 2010, kl.17.00
 Fundargerðin er lögð fram.
   
39.  1005031 - 302. fundur Skólanefndar FS, 11.maí 2010.
 Fundargerðin er lögð fram.
   
40.  1005006 - 69. fundur þjónustuhóps aldraðra.
 Fundargerðin er lögð fram.
   
41.  1006003 - 611. fundur í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesja.
 Fundargerðin er lögð fram.
   
42.  1006002 - 393. fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.
 Fundargerðin er lögð fram.
   
43.  1004005F - Umhverfisnefnd Grindavíkur - 124
 Fundargerðin er lögð fram.
   
44.  1005004F - Ferða- og atvinnumálanefnd Grindavíkur - 13
 Fundargerðin er lögð fram.
   
45.  1005006F - Menningar- og bókasafnsnefnd Grindavíkur - 67
 Fundargerðin er lögð fram.
   
46.  1006009F - Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grindavíkur - 159
 Fundargerðin er lögð fram.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:55