60. fundur fræðslu- og uppeldisnefndar Grindavíkur var haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Víkurbraut 62 í Grindavík hinn 22. júní 2010 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu: Klara Halldórsdóttir, Þórunn S. Róbertsdóttir, Sara Símonardóttir (varam. fyrir Evu Björg Sigurðardóttur), Sigríður Anna Ólafsdóttir og Einar Sveinn Jónsson frá nefndinni. Þá sátu fundinn Maggý Hrönn Hermannsdóttir og Stefanía Ólafsdóttir, f.h. skólastjórnenda, Þuríður Gísladóttir, f.h. kennara og Rannveig Böðvarsdóttir f.h. foreldra sem áheyrnarfulltrúar. Jafnframt sat Ívar Pálsson, lögfræðingur sveitarfélagsins fundinn. Nökkvi Már Jónsson situr fundinn og ritar fundargerð.
Dagskrá:
1. Mál nr. 1006015 - Sameining grunnskóla í Grindavík
Lagt fram yfirlit um þrjár mismunandi leiðir.
Tillaga meirihluta B og D lista:
Fræðslu- og uppeldisnefnd óskar eftir umsögnum frá skólaráðum og skólastjórnendum beggja grunnskóla um eftirgreinda tillögu:
„Stofnunin Hópsskóli verði lögð niður og öll starfsemi skólans verði færð undir Grunnskóla Grindavíkur og stjórn skólastjóra þess skóla. Áfram verði gert ráð fyrir því að yngstu bekkjardeildum hins sameinaða skóla verði kennt í húsnæði Hópsskóla. Tillagan gerir ekki ráð fyrir breytingum á högum núverandi starfsfólks Hópsskóla öðrum en þeim að staða skólastjóra verði lögð niður."
Frestur til að skila inn umsögnum er veittur til hádegis, mánudaginn 28. júní nk.
Breytingartillaga G og S lista:
Við óskum þess að sameining grunnskólanna verði tekin út af fagaðilum og verði gefið a.m.k. eitt ár til þess.
Breytingartillagan er borin undir atkvæði og hún felld. Fulltrúar G og S lista eru með en fulltrúar B og D lista eru á móti.
Tillaga B og D lista er samþykkt með 3 atkvæðum gegn tveimur atkvæðum G og S lista.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:00