Ár 2010, fimmtudaginn 17. júní var haldinn 159. fundur íþrótta- og æskulýðsnefndar Grindavíkur. Fundurinn var haldinn í Grindavíkurkirkju og hófst kl. 08:30.
Mættir voru: Sigurður Enoksson formaður, Pálmar Guðmundsson, Ægir Viktorsson (varamaður Jónu Rutar Jónsdóttur), Sigríður Guðmundsdóttir Hammer og Guðrún Sædís Harðardóttir. Jafnframt sat fundinn Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Sigurður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Þetta gerðist:
1. 1003005 - 17. júní 2010.
Farið yfir dagskrá dagsins. Lokaundirbúningur og skipulagsvinna fyrir daginn.
Sigurður Enoksson formaður nefndarinnar lagði fram eftirfarandi bókun:
Ég vil þakka nefndarmönnum kærlega fyrir vel unnin störf á þessu kjörtímabili sem var stormasamt og einnig vil ég þakka starfsmanni nefndarinnar fyrir vel unnin störf. Margt var unnið vel á þessum 4 árum hjá okkur og er það von mín að þeir sem taka við munu halda áfram á sömu braut og halda áfram að gera vel í íþrótta- og æskulýðsmálum hér í Grindavík. Við stígum stolt frá þessum málaflokki og afhendum keflið áfram til þeirra sem munu vinna í þessari nefnd á næsta kjörtímabili
Sigurður Enoksson
sign.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00
Sigurður Enoksson
Ægir Viktorsson
Pálmar Guðmundsson
Guðrún Sædís Harðardóttir
Sigríður Guðmundsdóttir Hammer.