Fyrstu skólaslit Hópsskóla
Fyrstu skólaslit Hópsskóla

Fyrstu skólaslit Hópsskóla voru í síðustu viku en skólinn tók til starfa um síðustu áramót. Þangað fluttust 1. og 2. bekkur úr grunnskólanum. Í vetur stunduðu 86 nemendur nám við skólann. Maggý Hrönn Hermannsdóttir skólastjóri flutti ávarp við skólaslitin. Hún segir að skólastarfið hafi gengið í alla staði eins og best verður á kosið. Þegar upp komu verkefni og atvik sem reyndu á nemedur og starfsmenn voru þau leyst í samvinnu og með kærleikann að leiðarljósi.

,,Við nýttum slökunar- og skynörvunaraðstöðuna talsvert og er mikil ánægja með hana. Nokkrir nemendur úr grunnskólanum við Ásabraut komu einnig á vordögum og nýttu sér aðstöðuna, auk þeirra kom einn nemandi frá Króki tvisvar í viku og naut þess að vera við ljósarörið og í boltabaðinu.  Smiðjuvinnan gekk afar vel, þar var nemendum skipt upp í fimm hópa og unnu þeir að ýmsum skapandi og skemmtilegum verkefnum í samvinnu við kennara og stuðningsfulltrúa. Morgunsöngurinn er orðinn fastur liður í skólastarfinu og skilar okkur öllum gleði. Börnunum er mörgunsöngurinn félagslega mikilvægur auk þess sem orðaforði þeirra og málskiningur eykst við hvern nýjan texta sem þau læra. Hádegis- og næðisstundin er farin að standa undir nafni með tilheyrandi ró, samvinnu, kurteisi og þakklæti fyrir matinn," segir Maggý Hrönn.

Hefðbundið skólastarf var að sjálfsögðu í hávegum haft með tilheyrandi bóklegum- og verklegum lestrar, skriftar, samfélgsfræði, stærðfræði og náttúrufræðiverkefnum.

Mikil áhersla var lögð á að nemendur nytu hlýju, umhyggju og öryggi í skólanum og segist Maggý Hrönn vona þeir hafi upplifað þennan mikilvæga þátt í skólastafinu.

Á skólaslitunum flutti Maggý Hrönn nemendum eftirfarandi kveðju:

,,Það er búið að vera yndislegt að vinna með ykkur. Þið eruð svakalega dugleg og hafið lagt hart að ykkur við námið. Námið er ekki bara að læra að lesa og skrifa. Ég hef nokkrum sinnu sagt við ykkur að til að verða góður í einhverju þurfi maður að æfa sig og við höfum líka rætt um að það sé hægt að æfa sig í að vera góður. Einnig höfum við rætt um að það sé hægt að æfa sig í að gera eitthvað sem er ekki fallegt og gott og þá verði maður góður í því. Þið hafið svo sannarlega æft ykkur í að vera góð, kurteis, þakklát, prúð og hjálpsöm.
Fyrir það þakka ég ykkur mjög, mjög mikið og er afar hreykin af ykkur.
Þegar ég verð gömul kona þá ætla ég að hugsa til ykkar og vona að þið hugsið fallega til samverustunda okkar allra í Hópsskóla. Ég vona líka að þið getið sagt þegar þið verðið fullorðin að í Hópsskóla hafið þið fengið tækifæri til að nýta hæfileika ykkar og gera ykkar besta. Líka að það hafi verið gaman í skólanum og að ykkur hafi liðið vel."

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2012
fim. 9. feb. 2012    Góðar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
mið. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
mið. 8. feb. 2012    Mikið um að vera í körfuboltanum
mið. 8. feb. 2012    Veiðarfæraþjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtæki
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Salthúsinu
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Veitingastofunni Vör
þri. 7. feb. 2012    Námskeið í skyndihjálp í sundlauginni
þri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
þri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
þri. 7. feb. 2012    Viltu taka þátt í menningarvikunni? Ertu með ábendingar?
þri. 7. feb. 2012    Verkalýðsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmæliskaffi á sunnudaginn
þri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmaður 14. umferðar
þri. 7. feb. 2012    Framhaldsaðalfundi frestað um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeið
mán. 6. feb. 2012    Opið hús hjá Þórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeið í svæðanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóðinn - Spennandi námskeið í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega við Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafnið gefur út upplýsingabækling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnaður hjá Vísi