Heimasíðunni hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning: ,,Menningar- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti 2010 í Grindavík lauk sunnudaginn 6. júní. Að mati lögreglunnar á Suðurnesjum hafa hátíðarhöldin gengið vel fyrir sig. Mikill fjöldi fólks var í bænum alla helgina, sem hófst fimmtudaginn 3. júní, en engin alvarleg mál hafa verið kærð til lögreglu.
Líkt og undanfarin ár var rekið ungmennaathvarf í samstarfi félagsmálayfirvalda í Grindavík og lögreglunnar á Suðurnesjum. Afskipti voru með minna móti en um 10 ungmenni voru færð í athvarfið vegna ölvunar og útivistarbrota.
Skemmtanahaldið gekk vel fyrir sig alla helgina, enda þótt erill væri töluverður hjá lögreglu. Fimm gistu fangahús vegna ölvunar.
Í heildina litið er lögreglan ánægð með allt skipulag í tengslum við hátíðina. Samstarf aðila sem komu að öryggismálum s.s. lögreglu, björgunarsveita, sjúkraliðs og starfsmanna Grindavíkurbæjar var gott eins og undanfarin ár og dagskrá með þeim hætti að hátíðin stendur vel undir nafni sem menningar- og fjölskylduhátíð. Lögregla þakkar öllum fyrir gott samstarf.
Grindavík 7. júní 2010.
Sigurður M. Ágústsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn"
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
