Á Sjóaranum síkáta opnaði Þorbjörn hf. sýninguna „Fiskveiðar og fiskvinnsla í Grindavík" við Ægisgötu og Hafnargötu 12. Þetta er minja- og myndasýning sem tengist sögu fyrirtækisins. Á tölvuskjám sem staðsettir eru í gluggunum eru jafnframt sýndar myndir út starfsemi fyrirtækisins.
Sýndir eru gamlir munir sem safnast hafa upp hjá fyrirtækinu í gegnum árin, sem eru bæði tengdir fiskveiðum og fiskvinnslu. Sýningin er í átta gluggum sem innréttaðir eru sem sýningargluggar í gömlu fiskmóttökulúgunum við gamla salthúsið, sem nú hýsir Veiðafæraþjónustuna ehf. við Ægisgötu (Garðvegarmeginn). Einn sýningargluggi er svo að Hafnargötu 12 þar sem skrifstofa Þorbjarnar hf. er.
Frábærlega hefur til tekist með þessa sýningu sem er metnaðarfull og fróðleg og eru bæjarbúar hvattir til þess að líta í sýningargluggana en eftir því sem best er vitað er sýning af þessu tagi einstök hér á landi.



Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
