Milli 15 og 20 ţúsund manns á Sjóaranum síkáta
Talið er að á milli 15 og 20 þúsund manns hafi verið á Sjóaranum síkáta í Grindavík í gær en það kemur betur í ljós eftir helgi þegar talið verður úr hraðvaraskiltum. Gríðarlegur fólksfjöldi var á hátíðarsvæðinu og af samtölum við þjónustuaðila í bænum var um algjört met að ræða. Tjaldsvæðið í Grindavík var fullt og einnig túnið hinum megin við Austurveg.
Að sögn lögreglu gekk nóttin stórslysalaust, nokkur útköll voru á efra tjaldsvæðinu. Átta ungmenni voru tekin í unglingaathvarf og var ekkert þeirra búsett í Grindavík. Mikið fjölmenni var á balli í íþróttahúsinu og fór það ágætlega fram að sögn lögreglu.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
