Bláa hverfið best skreytta hverfið
Bláa hverfið best skreytta hverfið

Grindvíkingar hafa farið á kostum í að skreyta bæinn í aðdraganda Sjóarans síkáta. Bænum hefur verið skipt upp í fjögur litahverfi sem hafa lagt mikinn metnað í að skreyta í sínum litum. Eiga bæjarbúa hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu þar sem frumleikinn og metnaðurinn var gríðarlegur. Að þessu sinni voru veitt verðlaun fyrir bestu skreytingarnar á bryggjuballinu í gærkvöldi.

Í dómnefndinni átti hvert hverfi sinn fulltrúa auk þess sem fenginn var Sandgerðingur til þess að vera formaður dómnefndar.

Dómnefndin var þannig skipuð:.
Formaður dómnefndar: Marta Eiríksdóttir Púlsinum Sandgerðisbæ.
Rauða hverfið: Sæborg Reynisdóttir.
Bláa hverfið: Rakel Lind Hrafnsdóttir.
Græna hverfið: Sólveig Ólafsdóttir.
Appelsínugula hverfið: Þórunn Róbertsdóttir.

Nefndin fór um bæinn eftir hádegi í gær, föstudag, og var einhuga í sínum störfum. Niðurstaðan varð eftirfarandi:
Best skreytta húsið er í rauða hverfinu og er: Árnastígur 2.
Best skreytta gatan er í græna hverfinu og er: Leynisbrún.
Frumlegasta skreytingin er í appelsínugula hverfinu og er: Vesturhóp 30.
Best skreytta fyrirtæki/stofnun er í bláa hverfinu og er: Leikskólinn Laut.
Best skreytta hverfið árið 2010 er: Bláa hverfið.

Það var Sólveig sem kynnti úrslitin með trukki og dýfu á hátíðarsviðinu við Saltfisksetrið í gærkvöldi.

Leynisbrún: Best skreytta gatan.

Leikskólinn Laut: Best skreytta fyrirtækið/stofnun.

Árnastígur 2: Best skreytta húsið.

Bláa hverfið er best skreytta hverfið.

Vesturhóp 30: Frumlegasta skreytingin.

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2012
fim. 9. feb. 2012    Góðar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
mið. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
mið. 8. feb. 2012    Mikið um að vera í körfuboltanum
mið. 8. feb. 2012    Veiðarfæraþjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtæki
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Salthúsinu
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Veitingastofunni Vör
þri. 7. feb. 2012    Námskeið í skyndihjálp í sundlauginni
þri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
þri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
þri. 7. feb. 2012    Viltu taka þátt í menningarvikunni? Ertu með ábendingar?
þri. 7. feb. 2012    Verkalýðsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmæliskaffi á sunnudaginn
þri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmaður 14. umferðar
þri. 7. feb. 2012    Framhaldsaðalfundi frestað um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeið
mán. 6. feb. 2012    Opið hús hjá Þórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeið í svæðanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóðinn - Spennandi námskeið í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega við Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafnið gefur út upplýsingabækling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnaður hjá Vísi