Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti hefst á morgun. Í dag hittust liðsstjórar hverfanna fjögurra með framkvæmdastjórn Sjóarans síkáta til þess að fara yfir lokasprettinn á undirbúningnum sem gengur vel. Veðurspáin lofar góðu, á morgun spáir 13 stiga hita og 10 metrum á sekúndu en á laugardaginn 11 stiga hita og 4 metrum á sekúndu og engin væta í kortunum nema nokkrir dropar á sunnudaginn.
Rétt er að vekja athygli á eftirfarandi: Fyrirtæki og stofnanir í Grindavík eru hvött til þess að skreyta því veitt verða verðlaun fyrir best skreytta fyrirtækið.
Skemmdir voru unnar á skreytingu í Leynisbrún í morgun þar sem búið var að útbúa gosbrunn. Bæjarbúar eru hvattir til þess að standa saman og fylgjast vel með skreytingum í næsta nágreinni til að koma í veg fyrir þetta.
Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í Sjóarann Síkáta, hið vinsæla golfmót Grindvíkinga sem hefur verið haldið um sjómannahelgina. Að þessu sinni verða mótin tvö talsins; annars vegar opið mót með Texas Scramble fyrirkomulagi og hinsvegar opið öldungamót. Eins og undanfarin ár verða frosnar fiskafurðir ásamt öðrum veglegum vinningum.
Þá er rétt að benda á að með því að smella á augýsingaborðann hér á forsíðunni er hægt að nálgast allar upplýsingar um Sjóarann síkáta 2010.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
