Fiskur undan steini
Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti hefst á morgun 3. júní kl. 10:30 þegar leikskólabörn á Laut og Króki skreyta girðinguna á móti verslunarmiðstöðinni í tilefni Sjómannadagshelgarinnar, líkt og í fyrra. Yfirskriftin er Fiskur undan steini. Krakkarnir hafa lagt mikla vinnu í skreytingarnar.
Lokað verður fyrir umferð á Víkurbraut frá hringtorgi að Aðalbraut á meðan leikskólakrakkarnar skreyta girðinguna. Bæjarbúar eru hvattir til þess að koma og hvetja krakkana og klappa fyrir þeim.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
