Námskeið 6 - 9 og 10 - 12 ára (tvö aðskilin námskeið): Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á aldrinum 6-12 ára (fædd 2004 og fyrr) þar sem viðfangsefnin eru skemmtileg og uppbyggjandi. Mikið er lagt upp úr útiveru. Þátttakendur eiga að hafa með sér hollt og gott nesti og í samræmi við lengd viðveru.
Það er ekki leyfilegt að senda barn með gos og sælgæti í nesti. Nauðsynlegt er að vera í góðum skóm. Réttur útbúnaður stuðlar að aukinni vellíðan. Gott er að vera með regnfatnað og aukaföt í tösku. Dagskrá hvers námskeiðs er fjölbreytt. Það verður föndrað, sungið, leikið, farið í heimsóknir, spilað, farið í dagsferð, sundferð og margt fleira. Engin tvö námskeið eru eins. Hvert námskeið stendur yfir í tvær vikur.
Námskeið 1: 07. júní - til 18. júní - Sjá skipulag.
Námskeið 2: 21. júní - 02. júlí - Sjá skipulag
Námskeið 3: 05. júlí - 16. júlí - Sjá skipulag
Námskeið 4: 19. júlí - 30. júlí - Sjá skipulag
Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá frá kl. 09:00 - 16:00. Hægt er að kaupa gæslu frá kl. 08:00 - 09:00 og frá kl. 16:00 - 17:00.
Leikjanámskeiðin munu hafa aðsetur í skólaseli Hópsskóla
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast hér á heimasíðunni eða í afgreiðslu á skrifstofu Grindavíkurbæjar.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
