Forsala aðgöngumiða á tónleika Mannakorns í íþróttahúsinu í Grindavík sunnudaginn 6. júní kl. 20:30 er hafin. Miðasalan fer fram í Saltfisksetri Íslands á opnunartíma safnsins frá kl. 11:00 - 18:00. Sími 420 1190. Miðaverð er 2.500 kr. í forsölu en 3.000 kr. við innganginn. Miðasalan hefur farið vel af stað.
Í aðalhlutverki verða að sjálfsögðu þeir Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson, sem hafa verið kjölfestan í bandinu frá stofnun þess. Einvala lið tónlistarmanna verður þeim til halds og trausts og m.a. söngkonan Ellen Kristjánsdóttir.
Mannakorn þarf varla að kynna fyrir nokkrum manni. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu árið 1976 og í heildina eru frumsamdar plötur nú orðnar 11 talsins. Fjöldi laga af þessum plötum eru orðin hluti af þjóðarsálinni og sannkölluð þjóðareign. Á tónleikunum verða tekin öll þekktustu lög sveitarinnar og má þar nefna lög á borð við Einhversstaðar einhverntímann aftur, Braggablús, Garún, Gamli skólinn, Víman, Gamli góði vinur, Lilla Jóns, Reyndu aftur, Blús í G og Róninn.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
