Dagskrá Sjóarans síkáta 2010 er tilbúin og verður dreift í öll hús í næstu viku en hún er hluti af Járngerði, kynningarblaði Grindavíkurbæjar. Fyrir óþreyjufulla er hins vegar bent á að hægt er að nálgast dagskrána hér á heimasíðunni. Jafnframt eru Grindvíkingar hvattir til að senda dagskrána sem víðast til vina og kunningja.
Í Járngerði er jafnframt götukort þar sem fram koma helstu upplýsingar varðandi lokanir á hátíðarsvæðinu, bílastæði, hátíðarsvæðið og staðsetningar á helstu viðburðum og ýmsu fleiru.
Í Járngerði er jafnframt dagskrá verslunar og þjónustu ásamt hinum vinsæla Söguratleik Grindavíkur. Dagskrá Sjóarans síkáta verður dreift í öll hús á Suðurnesjum og víðar.
Járngerður - Dagskrá Sjóarans síkáta 2010
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
