15 dagar í Sjóarann síkáta - Golf, sund, fótbolti, körfubolti, pílukast og stafganga
15 dagar í Sjóarann síkáta - Golf, sund, fótbolti, körfubolti, pílukast og stafganga

Íþróttir setja sinn svi á Sjóarann síkáta og verður m.a.keppt í golfi, sundi, fótbolta, körfubolta og pílukasti auk þess sem boðið verður upp á stafgönguferð. Í fyrra var fótboltamót hverfanna á sunnudeginum kl. 17 sem tókst vel og verður því framhaldið í ár. Rauða hverfið hefur þar titil að verja.

Fimmtudaginn 3. júní verður Bacalao-mótið í knattspyrnu í Hópinu en það er knattspyrnumót og skemmtun fyrir fyrrverandi leikmenn og stjórnarmenn Grindavíkurliðsins. Eftir mótið verður svo veisla í risatjaldi við Gula húsið. Fyrrverandi leikmenn, stjórnarmenn og þjálfarar Grindavíkur eru hvattir til þess að skrá sig á umfg@centrum.is sem fyrst.

Laugardaginn 5. júní kl. 08:00 verður Golfklúbbur Grindavíkur með hið árlega mót „Sjóarinn síkáti open“ á Húsatóftarvelli. Verðlaun verða frosnar fiskafurðir frá Þorbirni hf. eins og ávallt hefur verið svona í tilefni sjómannadagsins ásamt öðrum verðlaunum. Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 4 sætin.  Einnig verða námundarverðlaun á öllum par 3 holunum. Leikið er með Texas Scramble fyrirkomulagi.
Hámarksforgjöf kk er 24 og kvk 28. Þátttökugjald er 3.500 kr.

Þennan sama dag kl. 10-14 er Sundmót Sjóarans síkáta.  Sunddeild UMFG sér um mótið en vel á annað hundruð keppendur mæta til leiks í Sundlaug Grindavíkur. Glæsileg verðlaun.
Sundlaugin verður opin almenningi frá kl. 14:00 – 20:00 þennan dag.

Einnig verður knattspyrnumót kl. 10 á æfingasvæði Grindavíkur í 6. flokki drengja.  Keppt er í A, B, C og D liðum og er von á 200 þátttakendum, fyrir utan foreldra og forráðamenn.  Auk Grindavíkur taka þátt Keflavík, Njarðvík og Haukar.

Kl. 10 laugardaginn 5. júní stendur Orkubúið-heilsurækt fyrir stafgönguferð. Gengið frá sundlaug Grindavíkur og kringum Þorbjörn.  Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund.

Eins og áður hefur komið fram verður hreystimótið Sterkasti maður á Íslandi haldið við Saltfisksetrið, þrjár greinar verða kl. 11 og aðrar þrjár kl. 14.

Kl. 13:00 – 20:00 verður pílumót í versluninni Bárunni/Pizza Islandia.  Öllum velkomið að  taka þátt.  Skráning á staðnum. 

Þá verður leikur í Pepsi-deild karla á laugardeginum kl. 16:00 á Grindavíkurvelli þar sem Grindavík tekur á móti ÍBV. Er vel við hæfi að tvö helstu sjávarútvegspláss landsins takist á sjálfa sjómannadagshelgina.

Sunnudaginn 6. júní verður annað golfmót á vegum GG: Sjóarinn síkáti – fólk á besta aldri.  Öldungamót, leikið með punktafyrirkomulagi með forgjöf.  Verðlaun verða frosnar fiskafurðir í tilefni sjómannadagsins ásamt  fjölskyldu og/eða árskortum frá Bláa Lóninu og fleiri veglegum vinningum.
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin með forgjöf og efsta sætið án forgjafar.  Að sjálfsögðu með námundarverðlaun á öllum par 3 holunum. Hámarksforgjöf kk er 24 og kvk 28. Þátttökugjald er 3.500 kr

Á sunnudeginum kl. 14:00 – 16:00 verður götukörfubolti á nýja körfubolavellinum vinsæla við Hópsskóla í umsjón Körfuknattleiksdeildar UMFG. Ætlað stelpum og strákum 10 – 16 ára. Þrír saman í liði. Skráning á staðnum frá kl. 13:30.

Og kl. 17:15 verður knattspyrnumót hverfanna. Knattspyrnumót á Grindavíkurvelli á milli hverfanna fjögurra í Grindavík. Keppt er á hálfum velli, 10 í liði, 2x6 mínútur.  Valið er í lið samkvæmt eftirfarandi reglum:
- Enginn meistaraflokksleikmaður má vera með.
- Enginn af þeim sem keppti í fyrra má vera aftur með í ár.
- Liðsstjóri í hverju hverfi velur 16 leikmenn. 2 skulu vera 15-20 ára, fjórir skulu vera 21-30 ára, fjórir 31-40 ára, þrír 41-50 ára og þrír 51+. Að lágmarki skal vera ein kona úr hverjum aldurshóp. Skylda er að spila á strigaskóm (takkaskór bannaðir) og markvörður verður að vera í stígvélum. Leiknar verða 2x6 mínútur.
Leiknir verða undanúrslitaleikir (dregið á staðnum) og svo úrslitaleikur. Liðin þurfa að mæta í búningum í sínum litum.
Yfirdómari er Gunnlaugur Hreinsson.
Senda þarf liðsuppstillingu í síðasta lagi 1. júní á sjoarinnsikati@grindavik.is

 

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf ađstođarleikskólastjóra viđ leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseđlar fasteignagjalda fyrir áriđ 2012
fim. 9. feb. 2012    Góđar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
miđ. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
miđ. 8. feb. 2012    Mikiđ um ađ vera í körfuboltanum
miđ. 8. feb. 2012    Veiđarfćraţjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtćki
miđ. 8. feb. 2012    Ţorrablót á Salthúsinu
miđ. 8. feb. 2012    Ţorrablót á Veitingastofunni Vör
ţri. 7. feb. 2012    Námskeiđ í skyndihjálp í sundlauginni
ţri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
ţri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
ţri. 7. feb. 2012    Viltu taka ţátt í menningarvikunni? Ertu međ ábendingar?
ţri. 7. feb. 2012    Verkalýđsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmćliskaffi á sunnudaginn
ţri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmađur 14. umferđar
ţri. 7. feb. 2012    Framhaldsađalfundi frestađ um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeiđ
mán. 6. feb. 2012    Opiđ hús hjá Ţórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeiđ í svćđanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóđinn - Spennandi námskeiđ í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega viđ Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafniđ gefur út upplýsingabćkling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnađur hjá Vísi