Ár 2010, þriðjudaginn 18. maí var haldinn 67. fundur í menningar- og bókasafnsnefnd Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofunni og hófst kl. 16:00
Mætt: Kristín Gísladóttir formaður, Harpa Guðmundsdóttir og Kristín Þorsteinsdóttir. Einnig sátu fundinn Margrét Gísladóttir forstöðumaður bókasafnsins og Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Dagskrá:
1. 0811030 - Menningarvika í Grindavík
Lagt var fram uppgjör vegna menningarvikunnar sem tókst mjög vel. Aðsókn á viðburði alla þessa viku var um 3.000 manns sem er álíka góð aðsókn og árið 2009. Kostnaður við menningarvikuna hélst innan fjárhagsáætlunar og var kostnaður tæplega 1.000.000 kr.
2. 1005033 - Ljósmyndavefur Grindavíkur
Samþykkt að fela starfsmanni nefndarinnar að kanna með hvort ekki væri hægt ráða starfsmann í gengum átaksverkefni til að skanna inn myndir þannig að hægt verði að vinna við skönnun mynda í sumar.
3. 1003047 - Vorfundur forstöðumanna almenningsbókasafna.
Fundurinn fór fram 6. og 7. maí sl. Bæjarráð veitti 100.000 kr. styrk v/ móttöku forstöðumanna. Tókst fundurinn í alla staði vel og fundarmenn ánægðir með móttökurnar.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 17:00.
Kristín Gísladóttir
Harpa Guðmundsdóttir
Kristín Þorsteinsdóttir