Barnadagskráin á Sjóaranum síkáta verður með glæsilegasta móti og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Ýmis hefðbundin afþreying verður á hátíðarsvæðinu eins og leiktæki og paintball, skemmtisigling og fleira en jafnframt verða ýmis skemmtiatriði fyrir börn á öllum aldri.
Leiktækin verða á hátíðarsvæðinu bæði laugardag og sunnudag, andlitsmálun verður í Saltfisksetrinu, Paintball og Lazertak við Hársel, kassaklifur fyrir neðan Vísi o.fl. Á meðal skemmtikrafta á sviðinu á laugardeginum má nefna Frðrik Ómar og Jogvan, Sylvía Rún Idol-söngkona, John töframaður, Eyrún Ösp Ottósdóttir söngkona, Sirkus Sóley sem er spennandi sirkussýning þar sem fjör og dirfska ráða för í jafnvægislistum, gripli, húllahringjum, loftfimleikum og auðvitað sprella trúðarnir, úti-vatnsrennibraut fyrir ofan slökkvistöðina, hestateyming við Saltfisksetrið, sjópulsan verður á ferð um höfnin og brúðubíllinn skemmtir yngstu kynslóðinni að vanda.
Á sunnudeginum verður dorgveiðikeppni fyrir 16 ára og yngri á Norðurgarði (nýju bryggjunni). Skráning á staðnum. Foreldrar/forráðamenn fylgi yngri börnum. Veitt verða verðlaun fyrir mesta aflann, þyngsta fiskinn og ljótasta fiskinn. Sjóræninginn Jón Sparrow, (Björgvin Franz) náfrændi Jack Sparrow, stjórnar skemmtilegum sjóræningjaleik í sundlauginni en þetta er ætlað börnum ca. 4 - 10 ára. Svabbi sjóari (úr Stundinni okkar) heldur fyrirlestur um sjóskrímsli í Saltfisksetrinu en þetta er ætlað börnum ca. 8 ára og yngri. Götukörfubolti verður við Hópsskóla í umsjón Körfuknattleiksdeildar UMFG og er ætlað stelpum og strákum 10 - 16 ára. Á hátíðarsviðinu verður glæsileg dagskrá. Íþróttaálfurinn og Solla stirða koma í heimsókn, söngkonan Hera Björk syngur, Dúettin DúBilló skemmtir og þá verður dansatriði frá DansKompaní Reykjanesbæ. Jafnframt verður hestateyming við Saltfisksetrið.
Bifhjólaklúbbur Grindavíkur verður við Fiskmarkaðinn með krakkakeyrslu. Börn fá að sitja aftan á bifhjólum og fara hring. Mömmur fá að fara rúnt á eftir. Þetta er í boði Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur. Þá verður magnaður fjöllistamaður, Jay Gilligan frá Bandaríkunum, meðlimur í Sirkusnum Shoeboxtour sýnir listir sínar í Saltfisksetrinu. Jay er fjöllistamaður á heimsmælikvarða og hefur sýnt listir sínar um allan heim.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
