Þá er komið að því að telja niður fyrir Sjóarann síkáta sem hefst 4. júní nk. Ákveðið hefur verið í samráði við liðsstjóra hverfanna fjögurra að veita verðlaun að þessu sinni fyrir bestu skreytingarnar í fimm mismunandi flokkum. Bæjarbúar brugðust heldur betur við kallinu í fyrra og skreyttu bæinn glæsilega í sínum litum, bæjarbúar eru hvattir til þess að halda því áfram. Verðlaunin verða eftirfarandi:
1. Best skreytta húsið.
2. Best skreytta gatan.
3. Frumlegasta skreytingin.
4. Best skreytta fyrirtækið.
5. Best skreytta hverfið.
Sérstök dómnefnd hefur verið skipuð og er formaður hennar búsettur utan Grindavíkur. Verðlaunin verða veitt eftir skrúðgönguna á föstudagskvöldinu.
Þess má geta að með því að smella á auglýsinguna hér á forsíðunni þá finnur þú allar fréttir og upplýsingar um Sjóarann síkáta á einum stað. Jafnframt hefur verið stofnuð Fésbókarsíða fyrir Sjóarann síkáta.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
