Undirbúningurinn fyrir Sjóarann síkáta er kominn á fljúgandi ferð. Í gærkvöldi var fundur í bláa hverfinu og í dag hittust liðsstjórar hverfanna fjögurra með starfsmönnum hátíðarinnar til þess að fara yfir ýmis atriði varðandi framkvæmd og dagskrá hátíðinnar. Greinilegt er að mikill hugur er í fólki en tilgangurinn með því að funda með liðsstjórunum er að fá bæjarbúa til þess að koma enn meira að hátíðinni.
Á meðal þess sem farið var yfir var skipulagning á göngu hverfanna á föstudagskvöldinu á Sjóaranum síkáta. Samþykkt var að gera breytingar á gönguleiðinni hjá þremur hverfum af fjórum til þess að allir göngurnar sameinist á gatnamótun Ránargötu og Austurvegar. Verður það nánar auglýst síðar.
Hverfin fjögur munu tilnefna bæði fullorðins- og unglingalið í kappróður, keppa í að prjóna lengsta trefil í heimi, tilnefna trúbadora, ljósmyndara, kraftakalla, fulltrúa til að sjá um dorgveiðikeppni, í verðlaunanefnd og ýmislegt fleira.
Í gærkvöldi var fundað með fulltrúum í verslun og þjónustu í Grindavík. Einnig var mikill hugur í þeim og munu þeir taka fullan kraft í undirbúningi fyrir Sjóarann síkáta.
Rétt er að benda á að öll hverfin eru búin, eða eru að klára, að koma sér upp fésbókarsíðum. Lokafrestur til þess að skrá inn atriði fyrir Sjóarann síkáta er 10. maí. Vinsamlegast sendið tölvupóst á sjoarinnsikati@grindavik.is
Hér eru netföng liðsstjóranna:
Appelsínugula hverfið: Jón Berg Reynisson, jonbr@centrum.is
Bláa hverfið: Vilhelm Arason, villiara@simnet.is
Græna hverfið: Linda Sylvía Hallgrímsdóttir, bb81@simnet.is
Rauða hverfið: Fríða Egilsdóttir, freda@grindavik.is
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
