13. fundur Ferða- og atvinnumálanefndar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 6. maí 2010 og hófst hann kl. 20:00.
Fundinn sátu: Ingimar Waldorff, Birgir Reynisson, Magnús Már Jakobsson, Páll Valur Björnsson, Marta Sigurðardóttir.
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Gunnarsson, upplýsinga- og þróunarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Heimsókn frá fulltrúa Autogas ehf. sem kynnir fyrirtækið. - 0807058
Jóhann Þorgrímur Hallgrímsson fór yfir viðskiptaáætlun fyrirtækisins og lýsti framtíðarsýn Autogas ehf. Nefndinni líst vel á viðskiptahugmyndina en bendir á að senda þarf inn gögn til bæjarins samkvæmt reglum um aðkomu Grindavíkurbæjar að atvinnuuppbyggingu í sveitarafélaginu til að koma málinu í formlegt ferli.
2. Ósk um styrk - Erindi frá Bestir ehf. 1003071
Nefndin hafnar erindinu þar sem umsóknin uppfyllir ekki reglur um aðkomu Grindavíkurbæjar að atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu.
3. Samstarf við Hafnarfjarðarbæ. 0911055
Samkvæmt svari frá menningar- og ferðamálafulltrúa Hafnarfjarðabæjar er áhugi hjá Hafnfirðingum fyrir samstarfi í ferðamálum og stefna þeir að því að koma í heimsókn í ágúst.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:00.