Bókaverðlaun barnanna 2010 voru afhent á sumardaginn fyrsta í aðalsafni Borgarbókasafns, sem veitir verðlaunin árlega fyrir tvær bækur, aðra frumsamda og hina þýdda. Börn á aldrinum 6-12 ára velja bækurnar og fer valið fram í grunnskólum og bókasöfnum um allt land. Að þessu sinni tóku um fimm þúsund börn þátt í kosningunni og var þetta í níunda sinn sem verðlaunin eru veitt, en þau hlutu að þessu sinni, Þorgrímur Þráinsson fyrir bókina Núll núll 9 og Halla Sverrisdóttir fyrir þýðingu sína á Stórskemmtilegu stelpubókinni.
Dregið var úr atkvæðaseðlunum á barnaleiksýningunni í Hópsskóla og hlaut Hróðmar Vífill vinninginn að þessu sinni - Lestrardagbók. Um 70 krakkar tóku þátt í að velja hér í Grindavík og hlaut Gæsahúð - Týndi drengurinn flest atkvæði í íslenska flokknum og Stórskemmtilega stelpubókin í þýdda flokknum. Takk fyrir þáttökuna krakkar!
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
