Vinna við endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur hefur nú staðið yfir um nokkurt skeið. Á vinnslutímanum hefur verið haft víðtækt samráð við ýmsa aðila innan sveitarfélagsins auk þess sem haldinn var kynningarfundur um stöðuna á endurskoðun aðalskipulagsvinnunnar þann 8. júlí 2009.
Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga er hér kynnt tillaga að endurskoðuðu aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010 til 2030. Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 25. mars nk. kl. 17:00 í Saltfisksetri Íslands í Grindavík.
Áður en endurskoðun aðalskipulagsins verður tekin til formlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn verður tillagan einnig gerð aðgengileg í samræmi við 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga á skrifstofu sveitarfélagsins, Víkurbraut 62, 240 Grindavík, frá mánudeginum 22. mars til mánudagsins 19. apríl 2010 . Þá verður einnig hægt að nálgast tillögurnar á slóðinni. http://www.grindavik.is . Að lokinni fyrri afgreiðslu sveitarstjórnar munu breytingartillögurnar fara í formlegt kynningarferli þar sem þær verða auglýstar í a.m.k. 4 vikur þar sem þeim sem telja sig hafa hagsmuna að gæta gefst kostur á að koma með athugasemdir við tillögurnar.
Ingvar Þór Gunnlaugsson
forstöðumaður tæknideildar Grindavíkurbæjar
Grindavík 2010-2030 Sérkort eignarhald
Grindavík 2010-2030 Sérkort vatnsvernd
Grindavík 2010 - 2030 Sérkort verndarsvæði
Grindavík 2010 - 2030 Sérkort námusv.-iðnaðarsv.
Grindavík 2010 - 2030 Sérkort samgöngur
Grindavík 2010 - 2030 Aðalskipulag þéttbýlisuppdráttur
Grindavík 2010 - 2030 Aðalskipulag dreifbýlisuppdráttur
Grindavík 2010 - Greinargerð og umhverfisskýrsla 25. mars 2010
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
