Ár 2010, fimmtudaginn 8. apríl var haldinn 158. fundur íþrótta- og æskulýðsnefndar Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofunni og hófst kl. 17:00.
Mættir voru: Sigurður Enoksson formaður, Pálmar Guðmundsson, Jóna Rut Jónsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir Hammer og Guðrún Sædís Harðardóttir. Jafnframt sat fundinn Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Sigurður setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Bauð hann Guðrúnu Sædís sérstaklega velkomna á sinn fyrsta fund með nefndinni.
Þetta gerðist:
1. 1001063 - 15. Unglingalandsmót UMFÍ. Umsóknir óskast. Lögð fram greinargerð frá kynningarfundi sem fulltrúar UMFÍ héldu þann 9. mars sl. Íþrótta- og æskulýðsnefnd telur að það yrði mjög jákvætt fyrir bæjarfélagið ef unglingalandsmót yrði haldið í Grindavík. Vissulega fylgir því töluverður kostnaður en á móti kemur að tekjur af mótinu gætu orðið verulegar bæði fyrir framkvæmdaraðila, bæjarfélagið og þjónustuaðila. Uppbygging frjálsíþróttaaðstöðu yrði veruleg til bóta og myndi nýtast bæjarbúum öllum til almennrar líkamræktar, s.s. fyrir göngu og hlaup að móti loknu. Ef aðalstjórn UMFG tekur þá ákvörðun á næstu árum að sækja um að halda mótið hvetur nefndin bæjaryfirvöld að skoða það með jákvæðum hætti að stutt verði við þá umsókn. Nefndin vill jafnframt hvetja aðalstjórn UMFG til að skoða það að sótt verði um að halda unglingalandsmót í Grindavík á næstu árum, t.d. á 80 ára afmæli UMFG.
2. 1003005 - 17. júní 2010. Ein beiðni hefur borist um að fá að sjá um framkvæmd 17. júní hátíðarhaldanna á þessu ári, frá Knattspyrnudeild UMFG. Nefndin samþykkir það fyrir sitt leyti og felur starfsmanni nefndarinnar að ganga til viðræðna við fulltrúa knattspyrnudeildarinnar á svipuðum nótum og gert var við körfuknattleiksdeild UMFG á síðasta ári.
3. 1004006 - Umsókn um styrk í Afrekssjóð - Jens Valgeir Óskarsson.
Jens hefur verið valinn í 16 ára landslið karla fyrir Norðurlandamót unglingalandsliða sem fer fram í Solna í Svíþjóð 12. - 16. maí n.k. Samkvæmt vinnureglum afrekssjóðs er samþykkt að veita Jens styrk að upphæð 30.000 kr.
4. 1004005 - Umsókn um styrk í Afrekssjóð - Alexandra Marý Hauksdóttir. Alexandra hefur verið valinn í 16 ára landslið kvenna fyrir Norðurlandamót unglingalandsliða sem fer fram í Solna í Svíþjóð 12. - 16. maí n.k. Samkvæmt vinnureglum afrekssjóðs er samþykkt að veita Alexöndru styrk að upphæð 30.000 kr.
5. 1004004 - Umsókn um styrk í Afrekssjóð - Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir. Ingibjörg hefur verið valinn í 16 ára landslið kvenna fyrir Norðurlandamót unglingalandsliða sem fer fram í Solna í Svíþjóð 12. - 16. maí n.k. Samkvæmt vinnureglum afrekssjóðs er samþykkt að veita Ingibjörgu styrk að upphæð 30.000 kr.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00
Sigurður Enoksson
Guðrún Sædís Harðardóttir
Pálmar Guðmundsson
Jóna Rut Jónsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir Hammer.