Kaldalónskvöld.
Laugardaginn 13. mars 2010 var haldið Kaldalónskvöld í Saltfiskssetri Íslands. Þar komu fram nemendur Tónlistarskólans og sungu nokkur lög eftir Sigvalda Kaldalóns.
Það voru þær Jóna Rúna Erlingsdóttir en hún söng Bíum, bíum bamba, Margrét Erla Þorláksdóttir söng Sofðu, sofðu góði, Sigurbjörg Erlingsdóttir söng Fjallið eina, Margrét Einarsdóttir söng Ég lít í anda liðna tíð, Svanhvít Daðey Pálsdóttir söng Þú eina hjartans yndið mitt og Sigurósk Erlingsdóttir söng Ave María og tóku hinar undir í viðlagi. Undirleikari á píanó var Guðbjörg Leifsdóttir. Síðan las Aðalgeir Jóhannsson ágrip úr sögu um Sigvalda og Stigamenn léku í lokin nokkur lög.







Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
