Opiđ hús í Hópsskóla
Það var líf og fjör í Hópsskóla í gær þegar skólinn var opinn fyrir bæjarbúa í tilefni menningarvikunnar. Krakkarnir í 1. og 2. bekk í Hópsskóla hafa verið duglegir að æfa morgunsöng eftir að þau fluttu í skólann og tóku þau nokkur lög fyrir foreldra sem fjölmenntu. Þá var vígð slökunar- skynörvunaraðstaða í skólanum og var það Sigurður Björn í 1. H. sem klippti á vígsluborðann.
Jafnframt var glærusýning af myndskreytingum og sögugerð í tengslum við söngtextana sem krakkarnir sungu. Yfirheitið á verkum nemenda var Hafið. Jafnframt var Hópsskólafáninn vígður og dreginn að húni líkt og grindvíski fáninn og sá íslenski.





Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
