Tónlistarveisla í Grindavíkurkirkju
Tónlistarveisla í Grindavíkurkirkju

Á sunnudaginn kl. 17 verða spennandi tónleikar í Grindavíkurkirkju sem unnendur klassískrar tónlistar ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Tónleikar verða með sönglögum og aríum eftir Purcell. Flytjendur eru Anna Jónsdóttir, sópran, Sophie Schoonjans, harpa og Örnólfur Kristjánsson, selló.

Anna Jónsdóttir er fædd í Reykjavík. Hún hóf söngnám við Nýja Tónlistarskólann hjá Alinu Dubik og lauk þaðan burtfararprófi vorið 2003. Næsta vetur stundaði hún nám við Tónlistarháskólann í Búkarest þar sem hennar aðalkennari var Maria Slatinaru. Anna lauk síðan einsöngvaraprófi frá Nýja Tónlistarskólanum í nóvember 2004 undir handleiðslu Alinu Dubik.
Anna hélt debut-tónleika í Hafnarborg haustið 2006 þar sem Jónas Sen lék með henni. Árið 2008 gaf hún út sinn fyrsta hljómdisk, Móðurást, en á honum eru íslensk sönglög sem eiga það sameiginlegt að fjalla á einhvern hátt um móðurkærleikann. Síðustu ár hefur Anna tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífi með einsöngstónleikum og þátttöku í stærri verkum..

Sophie Schoonjans fæddist í Belgíu og lauk prófi frá Conservatoire Royal de Musique í Brussel 1984 í hörpuleik og 1985 i kammertónlist. Frá 1993 hef hún tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífí og hefur m.a. spilað í Íslenzku Óperunni, með Sinfóníuhljómsveit Norðulands, á Sumartónleikum Norðurlands, með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sophie hefur einnig spilað sem meðleikari á nokkrum geisladiskum.
Hún starfar nú sem hörpukennari hjá Tónlistarskóla Sigursveins og Tónskólanum Do re mí, jafnframt því að vera sjálfstætt starfandi hörpuleikari.

Örnólfur Kristjánsson lærði á selló á Íslandi hjá Páli Gröndal og Gunnari Kvaran. Var síðan við nám í New York hjá Channing Robbins og Paul Tobias. Hann hefur lært Suzuki-kennslufræði undir handleiðslu Hauks F. Hannessonar. Hann lauk 4. stigi í Suzuki-kennslufræðum árið 2004. Örnólfur hefur kennt mikið á selló frá árinu 1988, bæði á Íslandi og í Danmörku. Hann hefur einnig verið mjög virkur í tónlistarlífinu og m.a leikið í Sinfóníuhljómsveit Íslands og verið leiðandi sellóleikari m.a. í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Hljómsveit Íslensku Óperunnar.

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf ađstođarleikskólastjóra viđ leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseđlar fasteignagjalda fyrir áriđ 2012
fim. 9. feb. 2012    Góđar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
miđ. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
miđ. 8. feb. 2012    Mikiđ um ađ vera í körfuboltanum
miđ. 8. feb. 2012    Veiđarfćraţjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtćki
miđ. 8. feb. 2012    Ţorrablót á Salthúsinu
miđ. 8. feb. 2012    Ţorrablót á Veitingastofunni Vör
ţri. 7. feb. 2012    Námskeiđ í skyndihjálp í sundlauginni
ţri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
ţri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
ţri. 7. feb. 2012    Viltu taka ţátt í menningarvikunni? Ertu međ ábendingar?
ţri. 7. feb. 2012    Verkalýđsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmćliskaffi á sunnudaginn
ţri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmađur 14. umferđar
ţri. 7. feb. 2012    Framhaldsađalfundi frestađ um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeiđ
mán. 6. feb. 2012    Opiđ hús hjá Ţórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeiđ í svćđanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóđinn - Spennandi námskeiđ í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega viđ Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafniđ gefur út upplýsingabćkling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnađur hjá Vísi