Stjórn UMFÍ hefur ákveðið að auglýsa eftir umsóknum frá sambandsaaðilum UMFÍ um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 15. Unglingalandsmóts UMFÍ sem verður um verslunamannahelgina 2012. Með umsóknum sambandsaðila þarf að fylgja með samþykki þess sveitarfélags þar sem mótið verður haldið. Bæjarráð Grindavíkur tók erindi UMFÍ fyrir og óskaði eftir upplýsingum um hvaða framkvæmdir þarf að ráðast í til að UMFG með stuðningi bæjarins geti sótt um að halda mótið og kostnaðaráætlun við þær.
Á þriðjudaginn komu fulltrúar frá UMFÍ til Grindavíkur og héldu kynningu á unglingalandsmótunum. Þessi mót eru haldin ár hvert um verslunarmannahelgina og er orðin einn af stærri fjölskylduviðburðum um þessa helgi. Í fyrra var mótið haldið á Sauðárkróki og þá voru 1.500 keppendur skráðir til leiks og alls mættu 10.000 gestir á mótssvæðið. Í ár verður mótið haldið í Borgarnesi og verða keppnisgreinar 10. Í reglugerð um mótið er ein skyldugrein, glíma en íþróttagreinar eins og körfuknattleikur, knattspyrna, frjálsíþróttir og sund eru fastir liðir á dagskrá þessara móta. M.t.t þessa er frjálsíþróttaaðstaða sú eina sem upp á vantar í Grindavík til að UMFG geti sótt um að halda unglingalandsmót ef eingöngu er horft til íþróttagreinanna. En til að geta tekið á móti 10.000 gestum þarf gott svæði og kom fram á fundinum að það þyrfti um 8 hektara svæði undir tjaldsvæði. Mót sem þessi byggjast mikið upp á sjálfboðaliðastarfi og kom fram að um 400 manns höfðu komið að síðasta móti.
Kynning fulltrúa UMFÍ var mjög áhugaverð og mun íþrótta- og æskulýðsnefnd fjalla nánar um málið og senda svo greinargerð áfram til bæjarráðs.
Fulltrúar UMFÍ á fundinum voru Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður, Sæmundur Runólfsson framkvæmdastjóri og Ómar Bragi Stefánsson landsfulltrúi sem jafnframt hefur yfirumsjón með framkvæmd unglingalandsmótanna. Frá Grindavíkurbæ sátu fundinn Gunnar Már Gunnarsson bæjarfulltrúi, Sigurður Enoksson formaður íþrótta- og æskulýðsnefndar, Gunnlaugur Hreinsson formaður UMFG og Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
