2 dagar í menningarviku - Vel gekk ađ virkja heimafólk
2 dagar í menningarviku - Vel gekk ađ virkja heimafólk

Menningarvika Grindavíkur verður haldin 13. til 20. mars nk. undir yfirskriftinni Menning er mannsins gaman. Þetta er í annað sinn sem menningarvikan er haldin og er dagskráin fjölbreytt og skemmtileg en um 40 metnaðarfull atriði eru á dagskrá. Tónleikar, skemmtanir, frásagnir, sýningar og uppákomur verða alla dagana í Saltfisksetrinu, Bryggjunni, Flagghúsinu, Mömmu míu, Salthúsinu, Aðal-braut, Veitingastofunni Vör, Grindavíkurkirkju, leikskólunum, grunnskólunum og listastofum. Nokkrir af fremstu listamönnum þjóðarinnar koma í heimsókn en kjarninn í menningarvikunni er framlag heimamanna.

Setning menningarvikunnar verður í Saltfisksetrinu laugardaginn 13. mars og verður sjálf forsetafrúin, Dorrit Moussaieff, viðstödd og ætlar hún að taka í prjóna þegar hafist verið handa við að prjóna lengsta trefil í heimi.

Að sögn Kristins Reimarsson, frístunda- og menningarfulltrúa tókst menningarhátíðin í fyrra mjög vel og góð þátttaka var á allflesta viðburði. Segja má að hver Grindvíkingur hafi upplifað eitthvað af menningarvikunni í fyrra því um 3.000 manns mættu á þá viðburði sem voru á dagskrá. Hugmyndin á bak við þessa menningarviku er að virkja heimamenn sem mest til þátttöku og fá þá fjölmörgu sem eru að fást við alls konar list og listsköpun að stíga fram á sjónarsviðið.

En hvernig gengur að virkja heimafólkið?
„Það gengur bara nokkuð vel. Við boðuðum til fundar í janúar og óskuðum þar eftir hugmyndum að dagskráratriðum og það hefur skilað sér í þeirri fjölbreyttu dagskrá sem Grindavíkingum og gestum þeirra verður boðið uppá þessa 8 daga. Við höfum þó í ár fleiri „aðkeypt" atriði en flest eru þau þó með listamönnum sem tengjast Grindavík með einum eða öðrum hætti," segir Kristinn og bendir á óhætt sé að segjs að menningarlífið sé fjölbreytt. Menningarvikan í fyrra og þessi sem nú er að hefjast sýna það svo sannarlega.

„Dagskráin er fjölbreytt í ár. Heimsmetstilraunin sem við ætlum að setja af stað með því að prjóna lengsta trefillinn er spennandi verkefni. Einnig er vert að vekja athygli á saltfiskuppskriftarkeppninni sem við vorum með í fyrra og endurtökum í ár. Skáldaspjall þeirra Kristínar Marju og Kristínar Helgu á bókasafninu er áhugavert sem og allir þeir tónlistarviðburðir sem eru í boði núna. Óp-hópurinn, Delize Italiane og Kaldalónstónleikar í Saltfisksetrinu. Gunnar Þórðarson, Eyþór Gunnarsson og Ellen Kristjánsdóttir á Bryggjunni. Hópreið Lemúranna í Salthúsinu ásamt ungum grindvískum tónlistarmönnum og svo tónleikar í Grindavíkurkirkju. Að endingu verð ég svo að minnast á ljósmyndasýningu Ólafs Rúnars í Saltfisksetrinu. Það er sýning sem Grindavíkingar geta ekki látið fram hjá sér fara," segir Kristinn.

Athygli er vakin á því að ókeypis aðgangur er að flestum viðburðum menningarvikunnar. Einnig er gaman að geta þess að upphaf menningarvikunnar tengist núna safnahelgi á Suðurnesjum en ókeypis er í öll söfn á Suðurnesjum þessa helgi og fjölbreytt dagskrá í boði í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum. Vonandi skilar þessi helgi mikilli aðsókn til Grindavíkur því að margt spennandi er í boði.

Hægt er að nálgast dagskrána á www.grindavik.is

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut