Saltfisksetrið og félagið Matur-saga-menning standa fyrir uppskriftarkeppni um bestu saltfiskréttina 2010. Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur og Sigurvin Gunnarsson matreiðslumeistari velja fimm uppskriftir. Hægt er að senda uppskriftir í tölvupósti til matarsetur@matarsetur.is til 21. mars.
Vinningsuppskriftir verða valdar í lok menningarviku Grindavíkur 14. - 22. mars, sjá nánar um fjölbreytta dagskrá á www.grindavik.is
• 1. vinningur kr. 30.000
• 2. vinningur kr. 20.000
• 3. vinningur kr. 10.000
• 4. vinningur kr. 5.000
• 5. vinningur kr. 5.000
Vinningsuppskriftir verða sýnilegar á vefsíðum www.matarsetur.is og www.saltfisksetur.is
Í menningarviku mun Salthúsið í Grindavík, www.salthusid.is bjóða upp á vinningsuppskrift saltfisksréttar frá 2009.
Í Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a Grindavík verður myndasýning Ólafs Rúnars Þorvarðarssonar kennara „Lífið er saltfiskur" 140 gamlar myndir tengdar saltfiski auk hefðbundinnar saltfisksýningar safnsins.
Sigrún Jónsd. Franklín, menningarmiðlari, www.sjfmenningarmidlun.is
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)






