Krabbameinsfélag Íslands leggur áherslu á fræðslu og umræður um karlmenn og krabbamein nú í marsmánuði. Í því sambandi hefur félagið hrundið af stað táknrænni herferð fyrir yfirvaraskeggi hjá körlum: Mottu mars! Strákarnir á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK 255, allir 25, hafa verið duglegir að safna mottu og eru þeir í 3. sæti á landsvísu í liðakeppni en bíuð er að heita á þá rétt tæpum 150 þúsund kr.
,,Tökum allar áskoranir sem okkur berast alvarlega og skorum jafnframt á alla vinnandi menn að gera slíkt hið sama. Hormottur eru málið 2010!!!" segja strákarnir á Hrafni Sveinbjarnarsyni á heimasíðu átaksins.

Rannsóknir hafa sýnt að þótt færri karlmenn fái krabbamein en konur, greinist það oft seinna og því eru batahorfur verri. Þetta eru synir, bræður, pabbar, afar, vinir og makar einhverra þannig að þetta er ekkert einkamál. Árlega greinast á Íslandi að meðaltali 716 karlar með krabbamein og deyja aðmeðaltali 278. Rannsóknir sýna að koma má í veg fyrir að minnsta kosti 1 af hverjum 3 krabbameinum.
Af hverju yfirvaraskegg?
Yfirvaraskegg er táknrænt. Það auðveldar umræðu um það sem erfitt er að ræða. Krabbamein í karlmönnum hefur verið feimnismál allt of lengi. Krabbameinsféalgið býður fyrirtækjum að styrkja þetta góða átak með kaupum á pinna með yfirvaraskeggi fyrir starfsfólk sitt. Verðið er 1.500 kr. Nánari upplýsingar er að finna á www.karlmennogkrabbamein.is . Sjá einnig: http://www.youtube.com/watch?v=atROMgM7yPs.

Fleiri myndir af mottustrákunum á Hrafni Sveinbjarnar má sjá hér.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
