Knattspyrnukappinn góðkunni Eysteinn Hauksson, sem lagði skóna á hilluna í haust, er í skemmtilegu viðtali við heimasíðu stuðningsmannaklúbbs Selfoss. Þar er m.a. rætt við fulltrúa liðanna í úrvalsdeildinni um horfur sumarsins í fótboltanum og uppbyggingastarfið í Grindavík í boltanum.
Þar segir Eysteinn m.a.: ,,Ég er nokkuð bjartsýnn og tel ágætis líkur á að Grindavíkurliðið stígi skref upp á við í sumar, frá því sem verið hefur á síðustu árum. Það er æft gríðarlega vel og þegar maður rekst inn á æfingar, þá skynjar maður að andinn í liðinu er kraftmikill og að vel er tekist á. Grétar Hjartar kemur aftur inn eftir meiðsli og verður augljóslega mikill styrkur og Alexander sem kom frá Njarðvík, virðist hörkuleikmaður. Auðunn Helga er náttúrulega kominn og er það kannski helsta breytingin en þar fer maður með flottan feril á bakvið sig, sem hefur sýnt og sannað að hann getur haft mikil áhrif. Ég held að yngri leikmenn eigi líka eftir að bæta sig með því að umgangast hann á hverjum degi og lít ég komu hans ekki síst jákvæðum augum vegna þess. Luka hefur líka látið menn taka vel á því í vetur og verður fróðlegt að sjá hvort hann nái ekki að láta liðið blómstra í sumar. Ég (Bruce) og Óli Stefán (Pallister) höfum náttúrulega snúið okkur að öðrum verkefnum, svo meðalaldurinn og hávaðinn ætti að minnka eitthvað, þó koma Auðuns vinni eitthvað þar á móti."
Viðtalið í heild sinni má nálgast hér.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
