394. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 10. mars 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Hörður Guðbrandsson, Garðar Páll Vignisson, Guðmundur L. Pálsson, Björn Haraldsson, Gunnar Már Gunnarsson, Pétur Breiðfjörð Reynisson (PBR), Guðbjörg Eyjólfsdóttir (GE) og Ólafur Örn Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, fjármálastjóri
Dagskrá:
1. 0904007 - Endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir því að taka þetta erindi á dagskrá með afbrigði.
Samþykkt samhljóða
Forstöðumaður tæknisviðs kynnti endurskoðun aðalskipulags.
Bókun
Bæjarstjórn samþykkir að kynna drög að aðalskipulagi 2010-2030 ásamt umhverfisskýrslu, fyrir íbúum Grindavíkur, skv. 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga, nr. 73 frá 1997 með eftirfarandi athugasemdum:
Iðnaðar- og orkuöflun: Að gert verði ráð fyrir niðurdælingu affalls frá nýjum orkuverum.
Hafnarmál: Að gert verði ráð fyrir 10.000 tonna flutningsgetu skipa.
Vatnsvernd: Að vatnsverndarsvæði fari ekki inn á iðnaðarsvæði við Eldvörp.
Samþykkt samhljóða
2. 1003020 - Ekki nægir fyrir sveitarstjórnir að staðfesta fundargerðir án umræðu.
Til máls tók: Bæjarstjóri
Bókun
Grindavíkurbær er nú þegar að vinna samkvæmt þessum reglum.
3. 1003015 - Fundaboð, aðalfundur H.S.Veitna 19. mars í Eldborg.
Til máls tók: Hörður
Tillaga
Lagt er til að bæjarstjóri sæki fundinn fyrir hönd Grindavíkurbæjar.
Samþykkt samhljóða
4. 1003014 - Fundarboð, aðalfundur H.S.Orku 15. mars í Eldborg.
Til máls tóku: Hörður, Gunnar Már og bæjarstjóri
Tillaga
Lagt er til að Björn Haraldsson sæki fundinn fyrir hönd Grindavíkurbæjar.
Samþykkt samhljóða
Bókun
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar gerir ráð fyrir því að það komi formlegt erindi til hluthafa um hlutafjáraukningu og forkaupsréttarákvæði og samþykkir ekki fyrir sitt leyti breytingu á 4. grein samþykkta félagsins.
5. 1002041 - Varðar samning um veghald árið 2010.
Til máls tók: Bæjarstjóri
Tillaga
Lagt er til að samningurinn verði samþykktur en gerir ráð fyrir að skerðingin verði bætt upp síðar þegar ríkisbúskapurinn verði kominn í lag.
Samþykkt samhljóða
6. 1001035 - Uppbygging ferðamóttöku við Gunnuhver.
Til máls tóku: Bæjarstjóri, Guðmundur, Guðbjörg, Gunnar Már og Hörður
Tillaga
Bæjarstjóra verði falið að ganga til samninga um framkvæmdir við Gunnuhver við HS Orku, Reykjanesbæ og ferðamálasamtök Suðurnesja og leggja samninginn fyrir bæjarráð.
Samþykkt samhljóða
7. 0907028 - Tillaga að breyttu aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi vegna nýs hestamannasvæðis við Dagmálaholt í Grindavík.
Til máls tóku: Bæjarstjóri, Gunnar Már, Guðmundur, Garðar og Hörður
Bókun
Bæjarstjórn samþykkir svör unnin af forstöðumanni tæknideildar og breytingar á aðalskipulagi ásamt umhverfisskýrslu, sbr. 18. gr. skipulags- og byggingalaga. Forstöðumanni tæknideildar falið að svara athugasemdum.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Pétur situr hjá.
8. 0903091 - Aðalskipulagsbreyting vegna SV- línur
Til máls tók: Bæjarstjóri
Bókun
Bæjarstjórn samþykkir svör unnin af forstöðumanni tæknideildar og breytingar á aðalskipulagi ásamt umhverfisskýrslu, sbr. 18. gr. skipulags- og byggingalaga. Forstöðumanni tæknideildar falið að svara athugasemdum.
Samþykkt samhljóða
9. 0904027 - Innkaupareglur Grindavíkurbæjar
Til máls tóku: Bæjarstjóri, Gunnar Már, Garðar og Guðmundur
Tillaga
Fjárhæðir í greinum númer 4 og 13 verði tvöfaldaðar.
Samþykkt samhljóða
10. 1003016 - Breytingar á nefndarskipan bæjarins.
Til máls tók: Hörður
Tillaga
Guðrún Sædis Harðardóttir komi í stað Þórunnar Erlingsdóttur í íþrótta- og æskulýðsnefnd
Samþykkt samhljóða
11. 0904058 - Skólastefna Grindavíkur - síðari umræða
Til máls tók: Bæjarstjóri, Garðar og Guðmundur
Skólastefna Grindavíkurbæjar er samþykkt með 6 atkvæðum, með þeirri viðbót að hún verði endurskoðuð 1 sinni á hverju kjörtímabili.
Pétur situr hjá.
12. 1002004F - Bæjarráð Grindavíkur - 1227
Til máls tóku: Guðmundur, Björn, Guðbjörg, Hörður og Gunnar Már.
Fundargerð bæjarráðs nr. 1227 lögð fram til kynningar á fundi bæjarstjórnar nr. 394.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
