Brotist inn í Gula húsiđ
Í nótt var brotist inn í Gula húsið, félagsheimili knattspyrnudeildar. Ljóst er að einhver sem þekkir til starfsemi hússins braust þar inn því eftir að hafa spennt upp glugga og skemmt hann fór innbrotsþjófurinn beint inn á skrifstofu knattspyrnudeildar og braut upp skúffur þar sem verðmæti eru geymd. Að þessu sinni hafði innbrotsþjófurinn lítið upp úr krafsinu en skemmdir urðu á innanstokksmunum. Þeir sem urðu varir við mannaferðir í bænum í nótt, sérstaklega nálægt Gula húsinu, eru beðnir að láta lögreglu vita.
Þetta er í þriðja sinn á rúmi ári sem brotist er inn í Gula húsið.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
