Menningarvikan - Tónleikar, skemmtanir, frásagnir, sýningar og uppákomur
Menningarvikan - Tónleikar, skemmtanir, frásagnir, sýningar og uppákomur

Flagghúsið, Mamma mía, Salthúsið, Aðalbraut, Flagghúsið, Veitingastofan Vör,Grindavíkurkirkja, leikskólarnir, grunnskólarnir og ýmsir fleiri aðilar taka virkan þátt í menningarvikunni með margvíslegum uppákomum en þegar hefur verið greint frá því hvað Saltfisksetrið og Bryggjan bjóða upp á. Jafnframt verða tvær listastofur opnar fyrir gesti og gangandi og þá verða prjónanámskeið fyrir þá allra hörðustu og einnig verður boðið upp á bútasaum, svo eitthvað sé nefnt. Kútmagakvöld Lions og kvennakvöld körfuboltans verða í menningarvikunni, sýning verður fyrir yngri kynslóðina þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

 

Í Flagghúsinu verður dagskrá sem ber yfirskriftina „Niðri í skúrum". Annars vegar segir Kristinn Þórhallsson (Diddi raf) sögur úr skúrunum undir yfirskriftinni Staksteinar liðinnar aldar,frásagnir samferðamanna. Þá rekur vertinn sjálfur, Erling Einarsson, sögu verslunar í Grindavík undir yfirskriftinni Upprisa þjóðar, verslunarfrelsi og hámenning. Í Flagghúsinu verður einnig bútasaumur.

Aðal-braut verður með uppákomu í svipuðum dúr en Benóný Benediktsson segir frá bátum gerðum út frá Þórkötlustaðanesi og lífinu í nesinu í kringum 1940. Jafnframt verður myndasýning á bátum gerðum út frá Þórkötlustaðarnesi 1935-1948. Þá verða haldin prjónanámskeið, prjónakaffi, lopapeysusýning verður í Aðal-braut og saga prjóns rakin á myndrænan hátt.

Líklega munu góðborgarar bæjarins mæta í Flagghúsið og Aðal-braut en yngsta kynslóðin mætir í Hópsskóla þar sem sýningin Pína pokastelpa verður.

Veitingastofan Vör býður upp á harmonikkudansleik og Grindavíkurkirkja verður með tónleika með sönglögum og aríum eftir Prucell.

Salthúsið býður a.m.k. upp á tvenna tónleika. Annars vegar koma fram Óskar Kristinn Vignisson gítar og söngur, Finnbjörn Benónýsson gítar og klarínett, Albert Halldórsson trommur og söngur, Harpa Flóvents píanó og Margrét Erla Þorláksdóttir söngur. Þetta sama kvöld verður „Hópreið Lemúranna." Hópur landsþekktra flytjenda úr hinni fornfrægu hljómsveit Júpíter. Bræðingstónlist úr öllum heimshornum þar sem kennir margra og m.a. geimrænna áhrifa. Þá kemur fram Kvartett Jóns Ólafs bassa. Með honum spila; Tryggvi Hubner á gítar, Guðmundur Gunnlaugsson á slagverk og Siggi Sig á munnhörpu auk þess að syngja.

Hinar einu og sönnu Friðarliljur stíga á stokk og verða með tónleika á Víðihlíð líkt og í fyrra en þeir mæltust ákaflega vel fyrir.

Pizzustaðurinn Mamma mía sem skipti um eigendur fyrir skömmu leggur sitt af mörkum í menninguna og býður upp á tvennt. Annars vegar verður opnuð ljósmyndasýning fimm ungra ljósmyndara og eru tveir þeirra Grindvíkingar. Fimmmenningarnir eru: Arnar Freyr Guðmundsson, Samúel Þór Smárason, Arnar Bergmann Sigurbjörnsson, Gunnar Ásgeirsson, Halla Einarsdóttir. Hins vegar verður ka húsakvöld ungafólksins með tónlist og uppistandi. Meðal annars koma fram Albert Halldórsson, Songbird
og Bergur Ebbi verður með uppistand.

Leikskólarnir leggja sitt af mörkum í menningunni. Á Laut verður sýning á verkum barnanna og foreldrakaffi og þá munu elstu krakkarnir fara í göngutúr með hristur og heilsa upp á bæjarstjórann en yngri börnin munu á meðan blása hamingju sápukúlum til heilla fyrir bæinn okkar.
Á Króki mun börn á eldri deilum skemmta foreldrum og ætla m.a. að hljóðklæða ljóð. Einnig búa krakkarnir til listaverk og fuglahús. Grunnskólinn verður með sína árshátíð og þá verða nemendur úr 7. bekk með upplestur í Víðihlíð. Hópsskóli verður með opið hús einn dag og jafnframt verður samkoma á sal skólans.

Til að toppa þetta allt mætir hin eina og sanna Sigríður Klingenberg í Palómu og Bókabúðina og spáir í spilin! Verður eflaust nóg að gera hjá Sigríði.

Þessi upptalning er hvergi nærri tæmandi og sýnir hversu fjölbreytt dagskrá er í menningarvikunni.
Aðgangur að flestum viðburðum er ókeypis. Dagskrána menningarvikunnar má nálgast hér.

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut