Menningarvikan - Fjölbreytt dagskrá á Bryggjunni
Menningarvikan - Fjölbreytt dagskrá á Bryggjunni

Kaffihúsið Bryggjan tekur virkan þátt í menningarvikunni með ýmsum uppákomum en nokkrir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar mæta þangað. Að sögn Aðalgeirs Jóhannssonar á Bryggjunni verður fjölbreytnin í fyrirrúmi á menningarvikunni. Laugardaginn 13. mars verður sýnd myndin „Legið fyrir lúðu." Þessi mynd er tekin þann 1. september 1984.

„Þrír aldnir heiðursmenn fara á sjó frá Grindavík og ætla sér að fiska lúðu. Þeir hafa oft spjallað um það sín á milli hvernig lífið var í gamla daga. Það voru engin siglingatæki notuð þá og yfirleitt ekkert nema brjóstvitið. Samt voru þeir nokkuð vissir í sinni sök og vildu sýna unga fólkinu hvar lúðumiðin voru. Ólafur Rúnar Þorvarðarson tók þá á orðinu og hafði með sér upptökuvél. Þeir fóru vestur á Víkur á mið sem heita ,,á grösunum". Þeir renndu sínum færum sem voru af gömlu sortinni eins og notuð voru fyrir árið 1920, Sigurgeir átti þessi færi sem hann geymdi í skúrnum sínum síðan þá. Um leið og færið kom í botn beit lúðan á og þeir börðust við að koma henni um borð. Það kostaði mikið stímabrak og bresti. Þeir
fóru í land og lúðan vó hátt á annað hundrað kíló," segir Aðalgeir.

Þeir sem tóku þátt í leiðangrinum voru allir komnir á efri ár. Sigurgeir Guðjónsson (Sigurgeir í Hlíð) og Jón Gíslason (Jón í Baldurshaga) voru báðir á níræðisaldri og Árni Guðmundsson (Árni í Tungu) var hátt í áttrætt. Myndin tekur klukkutíma í sýningu. Færeyskur kappróður verður sýndur á undan sem aukamynd.

Mánudaginn 15. mars verða tveir af fremstu listamönnum þjóðarinnar á Bryggjunni þegar
hjónin Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson verða með tónleika.

„Eyþór á tengsl við Grindavík og vildi ólmur koma líkt og Ellen. Pétur Pétursson þulur var afi Eyþórs. Systir Péturs, Petrúnella, bjó í Grindavík en langömmubarnið hennar ber þetta nafn og býr í Grindavík í dag. Sonur Petrúnellu var Svavar Árnason, fyrsti heiðursborgari Grindavíkur, sem var organisti í Grindavíkurkirkju hálfa öldina," segir Aðalgeir.

Bryggjan býður jafnframt upp á bátasagnfræði en Grímur Karlsson sem var skipstjóri á Hamravíkinni og Bergvíkinni mætir. Grímur er ákaflega fróður um íslenska útgerðarsögu og hefur smíðað líkön af flestum fiskibátum sem sigldu undir íslenskum fána á síðustu öld. Þau eru mörg til sýnis í Byggðasafni Keflavíkur í Duushúsum. Grímur heldur fyrirlestur um bátana, útgerðarsögu, skipstjórasögu og sjómannasögu.

Söngtríóið Sárabót frá Grindavík tekur lagið. „Þar er æðstráðandi Siggi millimeter og með sér hefur hann þá Eirík Dagbjarts og Ella Magga og Ólafur Þórarinsson leikur á harmonikku," segir Aðalgeir.

Stigamenn verða með tónleika ásamt Árna Johnsen. Aðalgeir les jafnframt Grindavíkursögur.

Söngvaskáldið Gunnar Þórðarson úr Hljómum og Trúbroti verður með tveggja tíma konsert á Bryggjunni sem slær botninn í menningarvikuna þar.

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf ađstođarleikskólastjóra viđ leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseđlar fasteignagjalda fyrir áriđ 2012
fim. 9. feb. 2012    Góđar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
miđ. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
miđ. 8. feb. 2012    Mikiđ um ađ vera í körfuboltanum
miđ. 8. feb. 2012    Veiđarfćraţjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtćki
miđ. 8. feb. 2012    Ţorrablót á Salthúsinu
miđ. 8. feb. 2012    Ţorrablót á Veitingastofunni Vör
ţri. 7. feb. 2012    Námskeiđ í skyndihjálp í sundlauginni
ţri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
ţri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
ţri. 7. feb. 2012    Viltu taka ţátt í menningarvikunni? Ertu međ ábendingar?
ţri. 7. feb. 2012    Verkalýđsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmćliskaffi á sunnudaginn
ţri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmađur 14. umferđar
ţri. 7. feb. 2012    Framhaldsađalfundi frestađ um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeiđ
mán. 6. feb. 2012    Opiđ hús hjá Ţórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeiđ í svćđanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóđinn - Spennandi námskeiđ í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega viđ Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafniđ gefur út upplýsingabćkling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnađur hjá Vísi