Íþrótta- og æskulýðsnefnd Fundur nr. 157

Ár 2010, mánudaginn 1. mars var haldinn 157. fundur íþrótta- og æskulýðsnefndar Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofunni og hófst kl. 16:00.

Mættir voru: Sigurður Enoksson formaður, Pálmar Guðmundsson, Þórunn Erlingsdóttir, Jóna Rut Jónsdóttir og Sigríður Guðmundsdóttir Hammer. Jafnframt sat fundinn Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.

Sigurður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

Þetta gerðist:

1. 1001063 - 15.unglinga Landsmót UMFÍ. Umsóknir óskast.

Stjórn UMFÍ hefur ákveðið að auglýsa eftir umsóknum frá sambandsaaðilum UMFÍ um að taka að sér undirbúning og framkvæmd 15. Unglingalandsmóts UMFÍ sem verður um verslunamannahelgina 2012. Sambandsaðilar þurfa samþykki þess sveitarfélags þar sem mótið verður haldið. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um hvaða framkvæmdir þarf að ráðast í til að UMFG með stuðningi bæjarins geti sótt um að halda mótið og kostnaðaráætlun við þær. Samþykkt að óska eftir því við UMFÍ að þeir haldi kynningarfund í Grindavík um Unglingalandsmótin. Starfsmanni falið að hafa samband við framkvæmdastjóra UMFÍ.

2. 1001041 - Lífshlaupið 2010

Þátttaka Grindvíkinga í Lífshlaupinu var mjög góð og tóku 12.21% íbúa þátt. 29 lið frá 14 fyrirtækjum tóku þátt. Tvö fyrirtæki fengu viðurkenningu frá ÍSÍ, Íþróttamiðstöð Grindavíkur sem bar sigur út býtum í flokki fyrirtækja með 10 - 29 starfsmenn og Optimal sem varð í öðru sæti í flokki fyrirtækja með 3 - 9 starfsmenn. Samþykkt að afhenda fyrirtækjum verðlaunaskjal sem viðurkenningu fyrir góða þátttöku.

3. 1003005 - 17. júní 2010

Samþykkt að senda bréf á félagasamtök og óska eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér framkvæmd hátíðarhaldanna. Með umsóknum skulu fylgja tillögur að dagskrá.


Þar sem þetta er síðasti fundur Þórunnar vill hún koma á framfæri þökkum til nefndarmanna með gott samstarf.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00


Sigurður Enoksson
Þórunn Erlingsdóttir
Pálmar Guðmundsson
Jóna Rut Jónsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir Hammer.