Fundur bćjarráđs nr. 1227.

 

 

1227. fundur

Bæjarráðs Grindavíkur

haldinn  á skrifstofu bæjarstjóra,

miðvikudaginn 24. febrúar 2010 og hófst hann kl. 17:00

 

 

Fundinn sátu:

Guðmundur L. Pálsson, Petrína Baldursdóttir, Björn Haraldsson, Ólafur Örn Ólafsson, Hörður Guðbrandsson (HG),

 

Fundargerð ritaði:  Ólafur Örn Ólafsson , bæjarstjóri

 

 

Dagskrá:

 

1.    0906064 - Tilboð í Öryggisgæslu í Grindavík.

Til fundar kom Þorsteinn Gunnarsson og fór yfir tilboðin. Bæjarstjóra falið að ganga til samninga við Öryggismiðstöð Íslands á grundvelli verðkönnunar.

2.    1002025 - 390.fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf.

Fundagerðin lögð fram.

3.    1002024 - 68. fundur þjónustuhóps aldraðra haldinn á HSS þ.9.febr. 2010.

Fundagerðin lögð fram.

4.    1002028 - 300.fundur Skólanefndar FS 16.febrúar 2010

Fundagerðin lögð fram.

5.    1002026 - Fundagerð stjórnar Reykjanesfólkvangs 4.feb.10.

Fundagerðin lögð fram. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að Sveitarfélagið Vogar fái aðild að stjórn Reykjanesfólkvangs.

6.    1002020 - 217.fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja 9. febrúar 2010.

Fundagerðin lögð fram.

7.    1002022 - Fundagerð 32. aðalfundur SSS 2009.

Fundagerðin lögð fram.

8.    1002014 - 607. fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Fundagerðin lögð fram.

9.    1002009 - Fundagerð stjórnar S.Í.S nr. 771

Fundagerðin lögð fram.

10.  1002034 - Umsókn um reksrtarleyfi.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.

11.  1002030 - Beiðni um styrk til að halda málþing um jarðminjagarða.

Bæjarráð samþykkir að veita kr. 50.000 í styrk.

12.  1002029 - Stofnfélagafundur í Saltfisksetri Íslands.

Bæjarstjóra falið að mæta á fundinn fyrir hönd bæjarinns.

13.  1002027 - Endurgreiðsla VSK vegna kaupa á slökkvibifreiðum og búnaði.

Fram kemur að endurgreiðsla til bæjarfélagsins vegna kaupa á slökkvibifreið er kr. 1.878.432

14.  1002021 - Framtíðaruppbygging íþróttamannvirja.

Lagt fram.

15.  1002019 - Sorphirðuþjónusta.

Bæjarstjóra falið að svara erindinu.

16.  1002013 - Auglýsing um þjóðaratkvæðagreiðslu.

Fram kemur að þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave fer fram laugardaginn 6. mars.n.k. Athygli er vakinn á því að þeir sem voru með lögheimili í sveitarfélagi þann 13. febrúar 2010 eru á kjörskrá í Grindavík.

17.  1002011 - Útgáfa Afmælisrit

Erindinu frestað.

18.  1002010 - Lánasjóður sveitarfélaga óskar eftir heimild til að birta upplýsingar um stöðu lána

Hér með veitir sveitarstjórnin, með vísan í 60 gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, Lánasjóði sveitarfélaga heimild að miðla upplýsingum um lán sveitarfélagsins hjá lánasjóðnum opinberlega og til fjárfesta, þ.m.t. upplýsingar um nafn skuldara, tilgang láns, stöðu láns, lánstíma og önnur kjör. Upplýsingunum er miðlað í þeim tilgangi að fjárfestar hafi sem besta mynd af útlánasafni og starfsemi lánveitanda og mun miðlunin einkum eiga sér stað á gögnum frá lánveitanda s.s. í ársreikningum, árshlutareikningum , fjárfestakynningum og afmælisritum.
Samþykkt samhljóða.

19.  1002008 - Ákvörðun Umhverfisstofnunarvegna útgáfu starfsleyfis fyrir metanólvinnslu CRI ehf.

Lagt fram.

20.  0907028 - Tillaga að breyttu aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi vegna nýs hestamannasvæðis við Dagmálaholt í Grindavík.

Frestað.

21.  0906095 - Aðalskipulagsbreyting og umhverfisskýrsla vegna Suðurstrandavegur

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir svör unnin af forstöðumanni tæknideildar og breytingar á aðalskipulagi ásamt umhverfisskýslu. Forstöðumanni er falið að klára samráð við Vegagerðina varðandi athugasemdir Reykjanesfólkvangs.

22.  1002036 - Varðar múrviðgerðir og málun Víðihlíðar

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur tæknideild að bjóða út verkið.

23.  0912010 - Fastur ökutækjastyrkur starfsmanna Grindavíkurbæjar*

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við starfmenn um fastan ökutækjastyrk.

24.  0912005 - Kvörtun. - Trúnaðarmál.*

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.

25.  1002002F - Umhverfisnefnd Grindavíkur - 122

Fundagerðin er lögð fram til kynningar.



Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   19.00