Bæjarstjórn nr. 393

393. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn  í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 10. febrúar 2010 og hófst hann kl. 17:00


Fundinn sátu:
Hörður Guðbrandsson, Sigmar Júlíus Eðvarðsson, Garðar Páll Vignisson, Petrína Baldursdóttir, Björn Haraldsson, Gunnar Már Gunnarsson, Guðbjörg Eyjólfsdóttir (GE), Ólafur Örn Ólafsson

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, fjármálastjóri


Dagskrá:

1. 0811026 - Auðlindir í landi Grindavíkurbæjar

Til fundarins var mættur Árni Bragason sem kynnti auðlindastefnu Grindavíkur og eldfjallagarð og svaraði hann fyrirspurnum.


2. 1002012 - Niðurskurður á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Til máls tóku: Bæjarstjóri, Petrína, Hörður, Garðar og Sigmar.
 
Bókun
Bæjarstjórn Grindavíkur harmar þann mikla niðurskurð sem HSS stendur frammi fyrir og hvetur stjórnvöld til að standa vörð um grunnþjónustu á HSS varðandi heilsugæslu, fæðingaþjónustu, öldrunarþjónustu og almenna þjónustu við íbúa á Suðurnesjum og í Grindavík.
 
Tillaga
Bæjarstjórn Grindavíkur óskar eftir viðræðum við Heilbrigðisráðuneytið um yfirtöku á heilsugæslunni í Grindavík og sjúkraflutningum í Grindavík.
Tillagan er samþykkt með 5 atkvæðum, Petrína og Gunnar Már sitja hjá.

3. 1002002 - Varðar grenndarkynningu vegna byggingu þjónustuhúss á tjaldsvæði Grindavíkur

Enginn tók til máls

Samþykkt samhljóða

4. 1001062 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi í Svartsengi vegna metanólvinnslu.

Enginn tók til máls

Samþykkt samhljóða með sömu fyrirvörum og hjá skipulags- og bygginganefnd.

5. 1001007 - Breyting á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar.

Enginn tók til máls

Bæjarstjórn gerir ekki athugsemdir við skipulagsbreytinguna.

6. 0907028 - Tillaga að breyttu aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi vegna nýs hestamannasvæðis við Dagmálaholt í Grindavík.

Til máls tók: Hörður

Tillaga
Bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla málsins
                                  Samþykkt samhljóða


7. 0906095 - Aðalskipulagsbreyting og umhverfisskýrsla vegna Suðurstrandavegar

Til máls tók: Hörður

Tillaga
Bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla málsins
                              Samþykkt samhljóða


8. 1001023 - Þriggja ára áætlun 2011-2013

Bæjarstjóri fór yfir áætlunina og lagði til að hún verði samþykkt.

Þriggja ára áætlun 2011-2013 er samþykkt með 6 atkvæðum, Gunnar Már situr hjá.

9. 0905038 - Menntaskóli Grindavíkur

Til máls tók: Garðar

Tillaga að bókun
Þann 12. febrúar 2009 skipaði menntamálaráðuneytið nefnd til að athuga hvort grundvöllur væri fyrir stofnun framhaldsskóla í Grindavík og hefur sú nefnd lokið störfum. Gert var ráð fyrir að skólinn myndi starfa á grundvelli laga um framhaldsskóla og námsframboð tæki mið af aðalnámskrá framhaldsskóla.
Vilji bæjarstjórnar Grindavíkur er mjög skýr en það er að hefja skólastarf haustið 2010.
Menntamálaráðherra og fjármálaráðherra hafa gefið munnleg loforð um að skólastarf í framhaldsskóla í Grindavík hefjist haustið 2010. Þetta er fagnaðarefni enda vonir og væntingar miklar til þessa starfs.
               Samþykkt með 6 atkvæðum, Gunnar Már situr hjá

Tillaga
Bæjarstjórn Grindavíkur fagnar þessu framtaki og felur bæjarstjóra að ganga frá skriflegu samþykki við menntamálaráðuneyti.
               Samþykkt með 6 atkvæðum, Gunnar Már situr hjá


10. 0904058 - Skólastefna Grindavíkur- fyrri umræða

Til máls tóku: Petrína, Hörður og Sigmar

Samþykkt samhljóða að vísa Skólastefnu Grindavíkur til síðari umræðu.

11. 1001008F - Skipulags- og byggingarnefnd Grindavíkur - 510

Enginn tók til máls

Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar nr. 510 lögð fram til kynningar á fundi bæjarstjórnar nr. 393

12. 1002001F - Bæjarráð Grindavíkur - 1226

Enginn tók til máls.

Fundargerð bæjarráðs nr. 1226 lögð fram til kynningar á fundi bæjarstjórnar nr. 393


Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   18:55