Fullt út úr dyrum á fjölskylduhátíđ Króks
Fullt út úr dyrum á fjölskylduhátíđ Króks

Fullt var út úr dyrum á fjölskylduhátíð heilsuleikskólans Króks síðasta föstudag þegar leikskólinn bauð foreldrum og öðrum aðstandendum barnanna að koma og kynnast starfinu með því að aðstoða á leiksvæðum og að leika sér með börnunum. Boðið var upp á leik og þrautir í málörvun, stærðfræði, vísindum, listum, hreyfingu auk ýmissa leiktilboða. Að sjálfsögðu var svo boðið upp á afmæliskökur sem runnu ljúflega niður.

Markmið dagsins var að eiga góða samveru þar sem allir leika og læra og var ekki annað að sjá en að pabbar, mömmur, afar, ömmur, frændur, frænkur, systkin, börn og starfsfólk hefðu gagn og gaman af.

,,Þetta er í annað sinn sem haldin er slík hátíð hér og erum við mjög þakklát fyrir hversu vel foreldrarnir taka þátt í þessu með okkur og teljum þessa hátíð góða leið fyrir okkur að kynna starfið og efla samskiptin. Við, starfsfólkið á Króki sitjum eftir með gleði í hjarta og þakklæti fyrir ánægjulegan dag,"segir á heimasíðu skólans. Fleiri myndir á http://krokur.skolar.is/Myndasafn/856/default.aspx

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut