Glćsilegt og vel heppnađ 75 ára afmćlishóf UMFG
Glćsilegt og vel heppnađ 75 ára afmćlishóf UMFG

Ungmennafélag Grindavík fagnaði 75 ára afmæli sínu þann 3. febrúar síðastliðinn. Haldið var upp á afmælið með stærsta afmælishófi í sögu Grindavíkur síðasta laugardagskvöld þar sem rúmlega 400 manns mættu í sannkallaða þorra- og afmælishátíð UMFG þar sem var glatt á hjalla. Afmælishátíðin tókst í alla staði ljómandi vel undir röggsamri stjórn veislustjórans skemmtilega Freys Eyjólfssonar.

Búið var að gera íþróttahúsið að glæsilegum veislusal þar sem knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildir félagsins tóku sig saman um að halda afmælið og lá ómæld sjálfboðavinna þar á bak við. Gunnlaugur Hreinsson, formaður UMFG, veitti viðurkenningar. Sex einstaklingar fengu silfurmerki UMFG og sjö fengu gullmerki félgsins. Þá fengu traustir bakhjarlar félagsins í gegnum tíðina viðurkenningu UMFG. Tveir aðilar voru gerðir að heiðursfélögum UMFG, þeir Halldór Ingvason og Jón Leósson.

Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri færði UMFG afmæliskveðjur frá Grindavíkurbæ og afhenti 250.000 kr. að gjöf frá bænum til forvarnarmála en UMFG hefur nýlega stofnað forvarnarsjóð. Helga G. Guðjónsdóttir formaður UMFÍ færði UMFG afmæliskveðju Ungmennafélags Íslands.

Skemmtiatriðin voru flest hver heimagerð og þau voru hvert öðru betra. Stigamenn tóku lagið með sínum hætti og fluttu m.a. nýja útgáfu af Gestalistanum. Sæbjörg Vilmundsdóttir og Birna Óladóttir fluttu bæjarbrag eftir Dædu með sínu nefi en bæði þessi atriði voru á heimsmælikvarða. Þá sýndu stelpurnar á leikskólanum Laut á sér glænýja hlið með afar skemmtilegu söngatriði í anda ABBA og tenórarnir tveir, Davíð og Stefán tóku lagið. Það var svo hljómsveitin Í svörtum fötum sem lék fyrir dansi fram eftir nóttu.

Þar sem hátíðin þóttist takast með eindæmum vel er stefnt að því að gera risaþorrablót UMFG að árlegum viðburði.

Á efstu myndinni eru Gunnlaugur Hreinsson, formaður UMFG og Helga G. Guðjónsdóttir, formaður Ungmennafélags Íslands.

Tveir aðilar voru gerðir að heiðursfélögum UMFG, þeir Halldór Ingvason og Jón Leósson. Þeir áttu ekki heimangegnt. Á myndinni eru Helga Emilsdóttir, eiginkona Halldórs og Jón Unnar Viktorsson, barnabarn Jóns, sem tóku við viðurkenningunum fyrir þeirra hönd.

Þessir fengu gullmerki UMFG: Jóhannes Haraldsson, Eyjólfur Guðlaugsson, Sigurður Bergmann, Ólafur Þór Jóhannsson, Gunnar Vilbergsson, Jónas Þórhallsson og Ragnar Ragnarsson.

Þau fengu silfurmerki UMFG: María Jóhannesdóttir, Hilmar Knútsson, Jón Guðmundsson, Dröfn Vilmundarsdóttir, Hildur Gunnarsdóttir og Guðfinnur Friðjónsson.

Þessir aðilar fengu viðurkenningu fá UMFG fyrir frábæran stuðning í gegnum tíðina: Eðvard Júlíusson, Björgvin Gunnarsson, Gísli Willardsson sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd Willards Fiske Ólasonar, Dagbjartur Einarsson, Kristján Finnbogason, Gunnar Tómasson, Eiríkur Tómasson, Gestur Ólafsson, Hermann Ólafsson, Kristinn V. Johansen, Aðalgeir Georg Daði Johansen og Erla Pétursdóttir sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd föðurs síns, Péturs H. Pálssonar.

Fjórir af þeim aðilum sem fengu viðurkenningu UMFG fyrir góðan stuðning í gegnum árin: Björgvin Gunnarsson, Gísli Willardsson sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd Willards Fiske Ólasonar, Dagbjartur Einarsson og Kristján Finnbogason.

Gunnlaugur Hreinsson formaður UMFG og Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri.

Leikskólastelpurnar náðu upp dúndur stuði í salnum.

Tenórarnir tveir með góða aðstoðarmenn: Davíð, Jónas, Ólafur Örn og Stefán.

Stigamenn stálu senunni: Aðalgeir, Agnar, Kristinn og Eiríkur.

Sæbjörg og Birna fluttu bæjarbrag eftir Dædu.

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut