Grindavík mćtir ÍR í undanúrslitum í kvöld
Grindavík mćtir ÍR í undanúrslitum í kvöld

Stærsti leikur tímabilsins, það sem af er, fer fram í Röstinni í kvöld þegar Grindavík tekur á móti ÍR í undanúrslitum bikarkeppninnar kl. 19:15. Sigurliðið kemst í úrslitaleik bikarkeppninniar í Laugardalshöllinni þar sem andstæðingarnir verða Snæfell. Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna í íþróttahúsið í kvöld og hvetja strákana til dáða.

Meiðsli hafa sem kunnugt er herjað á herbúðir Grindavíkurliðsins að undanförnu. Flestir verða klárir í slaginn í kvöld að undanskildum Brenton Birmingham, samkvæmt upplýsingum úr herbúðum Grindavíkurliðsins. Búast má við hörku leik í kvöld þótt 10 stig skilji liðin að í deildinni en allt getur gerst í bikarnum!

Á heimasíðu ÍR eru ÍR-ingar hvattir til dáða: ,,Það er deginum ljósara að ÍR-ingar munu mæta dýrvitlausir til leiksins í Grindavík, eftir fremur rysjótt gengi í Iceland Express deildinni í síðustu leikjum. Allir eru heilir og klárir í leikinn og full ástæða er til að hvetja stuðningsmenn til að fjölmenna á leikinn og styðja strákana."

Það má því búast við fullum kofa í kvöld og stemmningin eftir því...