Guðmundur Pálsson, bæjarfulltrúi, fékk flest atkvæði og varð efstur í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Grindavík í gær. Vilhjálmur Árnason varð annar og Magnús Már Jakobsson þriðji en hann keppti við Guðmund um efsta sætið. Þeir eru báðir nýir á lista. Sjálfstæðisflokkurinn er með tvo bæjarfulltrúa. Á kjörskrá voru 387 og greiddi 256 manns atkvæði. Kjörsókn var því 66%. Niðurstaða prófkjörsins var þessi:
1. Guðmundur Pálsson með 138 atkvæði í 1. sæti
2. Vilhjálmur Árnason með 112 atkvæði í 1.-2. sæti
3. Magnús Már Jakbsson með 115 atkvæði í 1.-3. sæti
4. Jóna Rut Jónsdóttir með 104 atkvæði í 1.-4. sæti
5. Guðbjörg Eyjólfsdóttir með 106 atkvæði í 1.-5. sæti
6. Svava Björk Jónsdóttir með 96 atkvæði í 1.-6. sæti
Hörður Guðbrandsson (S)
Sigmar Eðvarðsson (D)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Garðar Páll Vignisson (V)
Björn Haraldsson (V)
Petrína Baldursdóttir (B)
Gunnar Már Gunnarsson (B)






