Risa afmælishóf UMFG undirbúið
Risa afmælishóf UMFG undirbúið

Í gærkvöldi hófu knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildir UMFG við að breyta íþróttahúsinu í glæsilegan samkomusal fyrir 75 ára afmælishóf UMFG sem haldið verður með pompi og pragt í kvöld. Undirbúningur stóð fram á nótt, teppi er lagt á allt gólfið í íþróttahúsinu, svið er sett upp, dansgólfið parketlagt og svört tjöld sett upp á alla veggi. Stólar og borð er leigt úr Laugardalshöll. Þá verður salurinn skreyttur. Leikmenn, stjórnarmenn, makar, velunnarar og stuðningsmenn standa saman að því að undirbúa afmælishófið. Afmælishófið er um leið þorrablót og er uppselt í matinn, eða fyrir rúmlega 400 manns.

Þá hefur Bjarni Óla kokkur verið að undirbúa þorramatinn ásamt kröftugum konum undanfarna daga. Auk þorramats verður ýmislegt annað góðgæti á boðstólum.

Rétt er að taka fram að 20 ára aldurstakmark er á ballið. Verð á ballið sjálft er 2.900 kr. Hljómsveitin Í svörtum fötum leikur fyrir dansi.

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeið
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíð starfsmanna Grindavíkurbæjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samið um almenningssamgöngur á Suðurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mætir Skagafirði í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock með 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góðri vetrarvertíð
fim. 2. feb. 2012    Viðhaldsstjóri og vaktmaður óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiðslu æfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteå vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsræktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sækir ÍR heim
mið. 1. feb. 2012    Kynningarátak bæjarins fyrir sjómenn vekur athygli
mið. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
mið. 1. feb. 2012    Lokadagur til að sækja um í Slökkviliðinu
mið. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
mið. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksæfingar hjá U16
mið. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
mið. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut