Mikiđ um ađ vera á heilsuleikskólanum Króki
Mikiđ um ađ vera á heilsuleikskólanum Króki

Mikið er um að vera í heilsuleikskólanum Króki þessa dagana. Tannverndarvika er yfirstandandi, í dag 5. febrúar er afmæli Króks og DAGUR STÆRÐFRÆÐINNAR og á laugardag 6. febrúar er dagur leikskólans. Til þess að geta unnið að öllum þessum spennandi verkefnum er búið að tengja þau öll saman. Í vikunni hafa börnin unnið að því að leysa stærðfræðiverkefni tengt tannheilsu og í dag er mikil fjölskylduhátíð þar sem haldið er upp á afmælið og dag leikskólans.

,,Dagur stærðfræðinnar mátti að sjálfsögðu ekki verða útundan þar sem stærðfræði er einn af okkar áhersluþáttum í starfi skólans. Á hverjum degi er boðið upp á stærðfræði í borðleikjum og eru börnin mjög dugleg að leysa þau verkefni sem í boði eru. Í vikunni hafa þau verið að telja tennur og leysa ýmis önnur stærðfræðiverkefni. Áhugasamt foreldri benti okkur á heimasíðu með stærðfræðiverkefnum og hugmyndum fyrir foreldra og börn sem vert er að skoða," segir á heimasíðu Króks.