122. fundur umhverfisnefndar Grindavíkur haldinn á bæjarskrifstofunum fimmtudaginn 4. febrúar 2010 og hófst hann kl. 16:00.
Mættir voru: Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Bryndís Gunnlaugsdóttir, Dórothea Jónsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson, upplýsinga- og þróunarfulltrúi, sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. 1002001 Skemmdir á innsiglingarvörðunni.
Nefndin er sammála um að innsiglingarvarðan verði lagfærð því í vettvangsferð formanns nefndarinnar og upplýsinga- og þróunarfulltrúa kom í ljós að hún er töluvert skemmd og af henni stafar slysahætta. Þá leggur nefndin til að varðan verði sett í upprunalegt horf.
2. 0911043 Geymslusvæði Grindavíkurbæjar í Moldarlág.
Nefndin fagnar umhverfisátaki tæknideildar en leggur til að fundinn verði varanleg framtíðarlausn og jafnvel nýtt skipulagt svæði sem sómi er af, vegna nálægðar núverandi svæðis við íbúabyggð.
3. 0912033 Bréf frá stjórn Ferðamálasamtaka Suðurnesja.
Nefndin fagnar þessu bréfi frá Ferðamálasamtökum Suðurnesja.
Nefndin leggur mikla áherslu á að Grindavíkurbær hafi frumkvæði að því að bæta aðgengi að Gunnuhver og styrkja uppbyggingu á þessari náttúruperlu sem er í landi Grindavíkurbæjar.
Nefndin leggur einnig mikla áherslu á að góðar merkingar og söguskilti við stórmerkilegar fornminjar á Selatöngum verði teknar til gagngerar endurnýjunar. Jafnfamt verði nýtt söguskilti sett upp og það verði í beinu framhaldi af öðrum söguskiltum sem markvisst hafa verið sett upp undanfarin misseri í landi Grindavíkurbæjar.
Nefndin styður einnig aðrar úrbætur sem fram koma í bréfinu.
4. 1001059 Umsókn um Bláfánann frá Bláa lóninu.
Nefndin samþykkir erindið.
5. 1002003 - Erindi vegna moltugerðar.
Málið var tekið inn með afbrigðum. Nefndin samþykkir erindið og leggur áherslu á að frágangur svæðisins verði snyrtilegur.
Fundi slitið kl. 16:50.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
