1226
haldinn á skrifstofu bæjarstjóra,
miðvikudaginn 3. febrúar 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson, Petrína Baldursdóttir, Björn Haraldsson, Ólafur Örn Ólafsson, Hörður Guðbrandsson (HG),
Fundargerð ritaði: Ólafur Örn Ólafsson , bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 0912057 - Kynning á tilboðum í öryggisþjónustu
Þorsteinn Gunnarsson kom til fundar við bæjarráð og fór yfir þau tilboð sem ligga fyrir. Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum.
2. 1002004 - Tillögur stjórnar SÍG.
Bæjarráð þakkar stjórn Saltfisksetursins fyrir tillögurnar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi um kaup á húseign Saltfisksetursins og leggja fyrir bæjarstjórn. Jafnframt verði gerður leigusamningur við Saltfisksetrið vegna afnota af húsnæðinu.
3. 1002003 - Erindi vegna moltugerðar.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar til umsagnar skipulags- og byggingarnefndar og umhverfisnefndar.
4. 1001063 - 15.unglinga Landsmót UMFÍ. Umsóknir óskast.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar íþrótta- og æskulýðsnefndar þar sem m.a. verði skoðað í hvaða framkvæmdir þarf að ráðast og kostnaðar áætlun við þær.
5. 1001058 - Umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar og veitingu veitinga.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.
6. 1001054 - Uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2009.
Lagt fram. Bæjarráð vekur athygli á að framlag ríkisins vegna húsaleigubóta og sérstakra húsaleigubóta hefur ekki dugað til að uppfylla 60% hlutdeild ríkisjóðs sem samið var um á grundvelli stöðuleikasáttmála og leggst því stærri hlutdeild á sveitarfélögin. Bæjarráð ítrekar að ríkisvaldið standi við sinn hluta af samkomulagi við sveitarfélögin í landinu.
7. 1001017 - Fyrirspurn um tengsl Grindavíkurbæjar við Saltfisksetur.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
8. 1001009 - Sameignarsamningur að óskiptu landi Jarngerðastaða og Hópstorfu.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að skrifa undir samninginn.
9. 0912004 - Tilfærsla á þjónstu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga.
Bæjarráð óskar eftir umsögn S.S.S hvernig sambandið sér fyrir sér flutning á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Telur sambandið að það gæti tekið að sér það hlutverk sem svæðisskrifstofa með málefnum fatlaða á Reykjanesi hefur í dag.
10. 0903091 - Aðalskipulagsbreyting vegna SV- línur
Úrskurður ráðherra lagður fram.
Fulltrúi D-lista fagnar niðurstöðu ráðherra.
11. 1001007F - Ferða- og atvinnumálanefnd Grindavíkur - 11
Fundagerðin er lög fram til kynningar.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)






