Skipulags- og byggingarnefnd

  

 

 

510. fundur

Skipulags- og byggingarnefndar Grindavíkur

haldinn  á skrifstofu byggingafulltrúa,

mánudaginn 1. febrúar 2010 og hófst hann kl. 17:00

 

 

Fundinn sátu:

Sigurður A Kristmundsson, Gísli Jóhann Sigurðsson, Svanþór Eyþórsson, Einar Jón Ólafsson, einnig sat fundinn Sigmar B. Árnason og Ingvar Þ. Gunnlaugsson forstöðumaður tæknideildar.

 

Fundargerð ritaði:  Ingvar Þ. Gunnlaugsson , Forstöðumaður Tæknideildar

 

Í byrjun fundarins komu inn á fundinn forsvarsmenn Fjórhjólaævintýris undir lið nr. 11

Dagskrá:

 

1.    1001036 - Skotfélagið óskar eftir aðstoð og stuðningi.

Skotfélagið Markmið óskar eftir svæði við Svartsengi í Grindavík og norðan við Svartsengi, þar sem langur afleggjari er frá Grindavíkurvegi.

Nefndin leggur til að 2 nefndarmenn ásamt forstöðumanni tæknideildar hitti forsvarsmenn skotfélagsins Markmið til þess að skoða umrætt svæði.

2.    0901008 - Umsókn um leyfi fyrir uppsetningu á stiga í Eldvarpagíg.

Eldfjallaferðir, nýstofnað ferðaþjónustufyrirtæki í Grindavík, sem stefnir á leiðsögn með ferðamenn um eldgíga og hraunhella Reykjanesskagans sækir um leyfi til uppsettningar á stiga í einn syðsta eldgíg Eldvarpa.

Nefndin hafnar erindinu að svo stöddu og leggur til að erindið verði tekið til umræðu inn í Eldfjallagarðsáætlunina og vísar erindinu til umhverfisnefndar til umsagnar.

3.    1001048 - Breyting á skráningu Efrahóps 29

Kristján Oddgeirsson óskar eftir að breyta skráningu á einbýlishúsi, sem hann er með í byggingu í tvær sjálfstæðar einingar.

Nefndin hafnar erindinu, þar sem umrætt erindi er í trássi við skipulag.


4.    0912050 - Álit Samkeppniseftirlitins, Skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni.

Samkeppniseftirlitið hefur gefið út meðfylgjandi álit nr. 3/2009 Skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni. Samkeppniseftirlitið mælist til þess að efni

 

 

álitsins verði kynnt þeim aðilum á vegum sveitarfélagsins sem annast skipulagsmál og lóðaúthlutanir.

Álit er lagt fram til kynningar fyrir nefndarmenn.

5.    1001007 - Breyting á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar.

Lögð er til umsagnar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005-2025, sem fram er komin vegna breytinga á mörkum varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli sbr. lög nr. 176/2006 um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu til íslenskra stjórnvalda. Ennfremur sbr. reglugerð nr. 38/2007 um að hluti varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli verði tekinn undir borgaraleg not.

Nefndin gerir engar athugasemdir

6.    1001062 - Ósk um breytingu á deiliskipulagi í Svartsengi vegna metanólvinnslu.

CRI óskar eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi í Svartsengi í Grindavík vegna byggingar metanólvinnslu.

Nefndin samþykkir erindið með fyrirvara á samþykki HS-Orku, Bláa Lónsins og Northern Light inn, jafnramt leggur nefndin áherslu á að frágangur verksmiðju og eimingarsúlu verði með þeim hætti að sem minnst sjónræn mengun verði af.

7.    0906095 - Aðalskipulagsbreyting og umhverfisskýrsla vegna Suðurstrandavegur

Fjallað um umsagnir og athugasemdir vegna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Suðurstrandavegar og svör við þeim skv. 18 gr. skipulags- og byggingarlaga.

Forstöðumanni tæknideildar er falið að fara yfir svörin í samræmi við niðurstöðu fundarins.

8.    0903091 - Aðalskipulagsbreyting vegna SV- línur

Fjallað um umsagnir og athugasemdir vegna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi vegna SV-línur og svör við þeim skv. 18 gr. skipulags- og byggingarlaga.

Forstöðumanni tæknideildar er falið að fara yfir svörin í samræmi við niðurstöðu fundarins.

9.    0907028 - Tillaga að breyttu aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi vegna nýs hestamannasvæðis við Dagmálaholt í Grindavík.

Fjallað um umsagnir og athugasemdir vegna tillögu að nýju Aðalskipulagi og deiliskipulagi vegna hesthúsasvæði og svör við þeim skv. 18 gr. skipulags- og byggingarlaga.

Forstöðumanni tæknideildar er falið að fara yfir svörin í samræmi við niðurstöðu fundarins.



10.  1002002 - Varðar grenndarkynningu vegna byggingar þjónustuhúss á tjaldsvæði Grindavíkur

Í upphafi óskaði formaður eftir því að taka þetta erindi inn sem afbrigði á dagskrá.
Samþykkt samhljóða.

Forstöðumaður Tæknideildar óskar eftir því við skipulags- og byggingarnefnd að bygging þjónustuhúss við tjaldsvæði Grindavíkur verði grenndarkynnt skv. 7.mgr. 43. gr. skipulags- og byggingarlaga.

Nefndin felur forstöðumanni tæknideildar að grenndarkynna breytingar á samkomulagi sem gert var 29. ágúst 2007.


11.  0912155 - Aðalskipulag, athugasemd við aðalskipulag

Í upphafi óskaði formaður eftir því að taka þetta erindi inn sem afbrigði á dagskrá.
Samþykkt samhljóða.

Fjórhjólaævintýri leggur fram athugasemdir við Aðalskipulag Grindavíkurbæjar vegna skilgreininga í kortagrunni varðandi skilgreiningu vega/slóða í skipulaginu.

Formanni nefndarinnar ásamt forstöðumanni tæknideildar er falið að ræða við formann hestamannafélagsins Mána í Grindavík ásamt forsvarsmönnum Fjórhjólaævintýris til að vinna að úrlausn um notkun stíga/slóða.



 



Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   19:50

 

___________________________                ___________________________

 

 

 

 

___________________________                ___________________________    

 

 

 

___________________________                ___________________________

 

 

 

 

___________________________                ___________________________