Á morgun laugardaginn 30. janúar 2010 verður samspilsdagur gítarnemenda úr öllum tónlistarskólum á Suðurnesjum haldinn í Háaleitisskóla Ásbrú (Vallarsvæðinu) og munu nemendur Tónlistarskólans í Grindavík fjölmenna þangað. Tveir kennarar fara frá Tónlistarskólanum í Grindavík, þeir Magnús Torfi Magnússon (GSM 866-0527) og Bjarni Helgason (GSM 899-3154). Samspilsdeginum lýkur með tónleikum í Háaleitisskóla kl. 15.
Mæting hjá gítarnemendum er kl. 09:30 í Háaleitisskóla Ásbrú. Í hádeginu munu nemendur borða léttan hádegisverð á Langbest Ásbrú. Þegar líða tekur á daginn mætir leynigestur á svæðið!
Stutt hlé verða gerð yfir daginn og er ætlast til að nemendur taki með sér einhverja hressingu, td. ávöxt, samloku og drykk. Foreldrar þurfa sjálfir að keyra nemendur á staðinn og sækja í lok æfingadags. Skipt verður í hópa eftir getu hvers og eins, nemendur hafa nú þegar fengið nótur af þeim lögum sem leikin verða.
Kostnaður á hvern nemanda er kr. 1.500 sem greiða skal í upphafi æfingardags. Vonast er til að sem flestir mæti á tónleikana.
Æfingadeginum lýkur með tónleikum, ætlast er til að foreldrar/forráðamenn komi að hlusta á afrakstur dagsins og keyri börnin heim.
Kostnaður á hvern nemanda: kr. 1.500, meðferðis skal hafa: gítar, nótnastatíf og fótstatíf (þeir sem eiga), nesti td. ávöxtur, samloka og drykkur
Dagskrá:
Kl. 09:30 Mæting í Háaleitisskóla Ásbrú (Vallarheiði)
Samæfingar hefjast
Nesti snætt
Samæfingar-framhald
Hádegisverður
Samæfingar-framhald
Kl. 15.00 Tónleikar í sal Háaleitisskóla - Allir velkomnir!
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
