Bćjarráđ nr. 1225.

 

1225 fundur

Bæjarráðs Grindavíkur

haldinn  á skrifstofu bæjarstjóra,

miðvikudaginn 27. janúar 2010 og hófst hann kl. 17:00

 

 

Fundinn sátu:

Guðmundur L. Pálsson, Petrína Baldursdóttir, Björn Haraldsson, Ólafur Örn Ólafsson, Hörður Guðbrandsson (HG),

 

Fundargerð ritaði:  Ólafur Örn Ólafsson , bæjarstjóri

 

 

Dagskrá:

 

1.    1001005 - Varðveisla og verndun hússins Bakka.

Óskar Sævarsson kemur til fundar við bæjarráð. Samkvæmt reglum um endurbætur gamalla húsa er húsið ekki styrkhæft.

2.    1001031 - 606. fundur í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Fundagerðin lögð fram.

3.    1001037 - 8. fundur nefndar um félagsheimili eldri borgara

Fundagerðin lögð fram. Bæjarráð þakkar nefndinni fyrir og leggur til að frumdrög Batterísins verði kynntar fyrir bæjarfulltrúum.

4.    1001046 - 389. fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf.

Fundagerðin lögð fram.

5.    1001053 - Afmæli UMFG

Bæjarráð samþykkir að í stað þess að halda Góugleði verði starfsmönnum boðið á afmælishátið UMFG. Bæjarstóra falið að afhenda afmælisgjöf.

6.    1001052 - Vaxtasamningur

Lagt fram til kynningar.Bæjarráð fagnar fyrirhuguðum vaxtasamningi Suðurnesja.

7.    1001051 - Umsókn um Tækifærisleyfi.

Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins fyrir sitt leiti.

8.    1001049 - Styrkur til hjálparstarfs á Haiti.

Bæjarráð samþykkir að styrkja hjálparstarf á Haíti um kr. 300.000. sem samsvarar um það bil 100 kr. á íbúa.
Samþykkt samhljóða.

9.    1001047 - Erindi Fjáreigendafélags Grindavíku.

Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um umfang framkvæmda og kostnað.

10.  1001043 - Stofnframlag Tækni-og vísindabókasafn Íslands á Ásbrú.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

11.  1001042 - 15.Aðalfundur Samorku 19. febrúar 2010.

Birni Haraldssyni falið að sækja fundinn.

12.  1001036 - Skotfélagið óskar eftir aðstoð og stuðningi.

Vísað til umsagnar skipulags- og bygginganefndar.

13.  1001035 - Uppbygging ferðamóttöku við Gunnuhver.

Bæjarstjóra falið að ræða við H.S. Orku og Ferðamálasamtök Suðurnesja.

14.  1001034 - Jarðirnar Vík, Rafnshús og hluta Júlíusarbletts í Grindavík.

Bæjarstjóra falið að afla frekari upplýsinga.

15.  1001033 - Hreinsibílar.

Erindið lagt fram til kynningar.

16.  1001020 - Ungt fólk til athafna.

Lagt fram til kynningar.

17.  1001003F - Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grindavíkur - 156

Fundagerðin lögð fram til kynningar.

18.  1001005F - Menningar- og bókasafnsnefnd Grindavíkur - 64

Fundagerðin lög fram til kynningar.



                                         Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   18:25