11. fundur

11. fundur Ferða- og atvinnumálanefndar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 26. febrúar 2010 og hófst hann kl. 20:00.

Fundinn sátu:
Ingimar Waldorff, Heiðar Hrafn Eiríksson, Magnús Már Jakobsson, Páll Valur Björnsson, Marta Sigurðardóttir.

Fundargerð ritaði: Þorsteinn Gunnarsson, upplýsinga- og þróunarfulltrúi.

Dagskrá:

1. 0911059 - Leiðsögukerfi í iPhone

Leifur Björnsson sem hefur hannað leiðsögukerfi í iPhone á vegum Locatify kom á fund nefndarinnar og kynnti forritið Sýndarleiðsögumaðurinn. Fólk getur keypt leiðsögn um tiltekið svæði og Sýndarleiðsögumaðurinn leiðir fólk um svæði í ákveðnu þema.
Nefndin telur að Sýndarleiðsögumaðurinn sé áhugavert innlegg í ferðaþjónustuna í Grindavík og ætlar að vinna áfram í málinu.


2. 0912058 - Tjaldsvæðið og sjóarinn síkáti

Fram kom á félagsfundi hjá Grindavík Experience á dögunum að samtökin vilja koma að framkvæmd Sjóarans síkáta. Nefndin fagnar því og hvetur jafnframt til þess að góð samvinna verði höfð við Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur um hátíðina.

3. 0911055 - Heimsókn menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar

Heimsókn nefndarinnar er frestað um óákveðinn tíma.

4. 1001036 - Skotfélagið óskar eftir aðstoð og stuðningi

Nefndin tekur undir bókun íþrótta- og æskulýðsnefndar frá 156. fundi nefndarinnar þar sem tekið er jákvætt í erindið.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:50.