392. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 20. janúar 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Hörður Guðbrandsson, Sigmar Júlíus Eðvarðsson, Garðar Páll Vignisson, Petrína Baldursdóttir, Guðmundur L. Pálsson, Björn Haraldsson, Gunnar Már Gunnarsson,
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, fjármálastjóri
Í upphafi fundar biður forseti fundarmenn að rísa úr sætum og minnast Ólafs Benónýs Guðbjartssonar og sendir fjölskyldu hans samúðarkveðjur um leið og Ólafi eru þökkuð vel unnin störf í þágu Grindavíkurbæjar.
Dagskrá:
1. 0911033 - Fundargerð hafnarstjórnar nr. 391.
Til máls tóku: Guðmundur og Gunnar Már
Fundagerðin lögð fram til kynningar á fundi bæjarstjórnar nr. 392.
2. 1001039 - Fundagerð Hafnarstjórnar nr. 392
Til máls tóku: Guðmundur og Gunnar Már
Fundagerðin lögð fram til kynningar á fundi bæjarstjórnar nr. 392.
3. 1001040 - Fundagerð Hafnarstjórnar nr. 393.
Til máls tóku: Guðmundur og Gunnar Már
Fundagerðin lögð fram til kynningar á fundi bæjarstjórnar nr. 392.
4. 1001026 - Útsending á vef UMFG frá bæjarstórnarfundum.
Til máls tóku: Guðmundur, Petrína, Sigmar og Garðar
Tillaga
Bæjarstjórn Grindavíkur felur kerfisstjóra Grindavíkurbæjar og upplýsinga- og þróunarfulltrúa að kanna möguleika á útsendingu bæjarstjórnarfunda á heimasíðu Grindavíkurbæjar.
Greinargerð
Bæjarstjórn þakkar körfuknattleiksdeild UMFG sýndan áhuga. Bæjarstjórn telur eðilegt að fundir bæjarstjórnar séu sendir út á heimasíðu bæjarins.
Tillagan er samþykkt samhljóða
5. 1001009 - Sameignarsamningur að óskiptu landi Jarngerða og Hópstorfu
Til máls tóku: Guðmundur, Gunnar Már og Hörður
Bæjarstjórn felur bæjarráði fullnaðarafgreiðslu samningsins og felur bæjarastjóra að undirrita samninginn með þeirri breytingu að inn í 6. gr. komi ákvæði sem tryggi að 4/5 hluta atkvæða þurfi til breytinga á aðalfundi.
Samþykkt samhljóða
6. 1001008 - Umsókn um leyfi til niðurrifs byggingar að Ægisgötu 4 í Grindavík
Enginn tók til máls
Bæjarstjórn samþykkir leyfi til niðurrifs með sömu skilmálum og skipulags- og byggingarnefnd.
7. 0912053 - Tillaga fjárhagsnefndar S.S.S. að fjárhagsáætlunum.
Til máls tók: Hörður
Bókun
Fram kemur í áætluninni að heildarhlutur Grindavíkurbæjar vegna sameiginlegra málefna SSS er 59.960.000 kr.
Áætlunin er samþykkt samhljóða
8. 0912010 - Fastur ökutækjastyrkur starfsmanna Grindavíkurbæjar
Til máls tóku: Guðmundur, bæjarstjóri, Petrína, Gunnar Már, Garðar, Björn og Sigmar
Tillaga
Bæjarstjóra falið að segja upp föstum akstursamningum við starfsmenn sem eru með meira en 300 km. á mánuði. Bæjarstjóra falið að koma með tillögur til bæjarfulltrúa fyrir 15. febrúar nk.
Tillagan er samþykkt samhljóða
9. 0912009 - Tekjuviðmið 2010 vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi
Til máls tók: Gunnar Már
Tillaga
Lagt er til að tekjuviðmið vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi hækki um 2% frá fyrra ári og verði eftirfarandi:
Tekjuviðmið vegna afsláttar á álagningu 2010 (tekjur ársins 2009)
Einstaklingar Lækkun
0 - 2.386.704 100%
2.386.705 - 2.724.039 75%
2.724.040 - 2.871.626 50%
2.871.627 - 3.012.073 25%
3.012.074 og hærra 0%
Hjón Lækkun
0 - 3.582.738 100%
3.582.739 - 4.089.105 75%
4.089.106 - 4.310.643 50%
4.310.644 - 4.521.468 25%
4.521.469 og hærra 0%
Tillagan er samþykkt samhljóða
10. 0912004 - Tilfærsla á þjónstu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga.
Til máls tóku: Guðmundur, Petrína, Garðar, Hörður og Sigmar
Tillaga
Lagt er til að skipa í nefnd um flutning á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga á bæjarráðsfundi.
Samþykkt samhljóða
11. 0911095 - Álagningarreglur fasteignagjalda 2010
Til máls tóku: Bæjarstjóri, Guðmundur, Garðar og Sigmar
Tillaga fyrir árið 2010
1. Fasteignaskattur
1.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)........ 0,24% af fasteignamati húss og lóðar
1.2. Opinberar byggingar (b-liður).. 1,32% af fasteignamati húss og lóðar
1.3. Annað húsnæði (c-liður)........ 1,60% af fasteignamati húss og lóðar
2. Holræsagjald
2.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)........ 0,13% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Opinberar byggingar (b-liður).. 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Annað húsnæði (c-liður)........ 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3. Vatnsgjald
3.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður)........ 0,14% af fasteignamati húss og lóðar
3.2. Opinberar byggingar (b-liður).. 0,19% af fasteignamati húss og lóðar
3.3. Annað húsnæði (c-liður)........ 0,17% af fasteignamati húss og lóðar
3.4. Aukavatnsgjald................. 10 kr/m3 vatns
4. Sorphreinsunargjald/Tunnuleiga
4.1. Íbúðarhúsnæði.................. 9.000 kr. tunnu pr. ár
5. Sorpeyðingargjald
5.1. Íbúðarhúsnæði.................. 21.500 kr. tunnu pr. ár
6. Lóðarleiga
6.1. Íbúðahúsalóðir................. 0,88% af fasteignamati lóðar
6.2. Lóðir v. opinberra bygginga.... 2,00% af fasteignamati lóðar
6.3. Lóðir v. annað húsnæði......... 1,00% af fasteignamati lóðar
7. Rotþróargjald
7.1. Rotþróargjald.................. 5.000 kr. pr. rotþró pr. ár
8. Fjöldi gjalddaga 10
1/2, 1/3, 1/4, 1/5, 1/6, 1/7, 1/8, 1/9, 1/10 og 1/11 2010
Tillagan er samþykkt samhljóða
12. 0911094 - Gjaldskrá þjónustugjalda 2010
Til máls tóku: Bæjarstjóri og Hörður
Tillaga að gjaldskrá þjónustugjalda árið 2010
Leikskólagjöld 2010
Tímagjald 2.730
Tímagjald, einstæðir foreldrar 2.060
Viðbótar 15 mín 910
Afsláttarreglur:
Systkinaafsl. 2. barn 50% af gjaldi
Systkinaafsl. 3. barn og fleiri, vistun frítt en greitt fyrir mat og hressingu
Barn í elsta árgangi: 4 tíma vistun frítt, greiðir fyrir mat og hressingu
Hressing (morgun/síðdegi) 1.660
Hádegismatur 3.130
Gæsluvöllur 2010
Vistunargjald pr. 4 tíma vistun 200
Tónlistarskólagjöld (haust 2010) 2010
Fullt hljóðfæranám 44.200
Hálft hljóðfæranám 26.600
Fullt söngnám 56.000
Hálft söngnám 34.000
Fullt aukahljóðfæri 24.500
Hálft aukahljóðfæri 14.500
Blásarasveit 10.000
Hljóðfæraleiga 3.420
Afsláttarreglur
Tónlistarnám grunnskólabarna er án gjaldtöku
Sundlaug 2010
Stakt gjald barna 0
Stakt gjald fullorðinna 350
10 miða kort, börn 0
10 miða kort, fullorðnir 2.000
30 miða kort börn 0
3 mánaða kort fullorðnir 5.000
Árskort, fullorðnir 15.000
Árskort fjölskyldu 30.000
Leikjanámskeið 2010
Vikunámskeið 2.000
Tveggja vikna námskeið 3.000
Afsláttarreglur
Systkinaafsláttur 50%
Vikunámskeið 1.000
Tveggja vikna námskeið 1.500
Slökkvilið 2010
Útseld vinna, pr. tími 3.220
Dælubíll 4.680
Lausar dælur 2.850
Bókasafn 2010
Leiga á myndbandi 170
Leiga á snældu 70
Leiga á tungumálanámsk. 220
Sekt, bækur, pr. byrjuð vika 70
Sekt, námsk., pr. byrjuð vika 70
Sekt á myndband 170
Sekt á snældu 70
Internet, fyrstu 15. mín 120
Internet, 15. mín eftir það 70
Vegna grunnskóla 2010
Heimanámsaðstoð 270
Vistun utan skólatíma 210
Skólamáltíðir í áskrift 200
Leigugjald, afnot grunnskóla óbreytt frá fyrra ári.
Tillagan er samþykkt samhljóða
13. 0807032 - Umsókn um uppsetningu búnaðar fyrir farsíma.
Til máls tók: Hörður
Samþykkt samhljóða
14. 0808035 - Skólastjóri leikskólans Lautar, ráðning
Til máls tóku: Gunnar Már og Hörður
Tillaga
Bæjarstjórn samþykkir að framlengja núverandi ráðningarsamning Albínu Unndórsdóttur sem leikskólastjóra Lautar ótímabundið.
Tillagan er samþykkt með 5 atkvæðum, Petrína og Gunnar Már sitja hjá.
Bókun
Það er bæði einkennilegt og ekki að sjá þennan lið á dagskrá bæjarstjórnarfundar í janúar þegar ráðningarsamningi lýkur ekki fyrr en 31. ágúst n.k. hjá leikskólastjóra Lautar.
Án þess að vera lasta hennar störf þá er það mín skoðun að það er alltar að verða sýnilegra og sýnilegra með hverjum fundi sem líður hjá þessum nýja meirihluta af hverju slitnaði uppúr síðasta meirihluta.
Gunnar Már Gunnarsson
Bókun
Tímabundin ráðning Albínu Unndórsdóttur var þannig til komin að um samkomulag B og S-lista var að ræða. Þó það væri skoðun S-lista manna að ótímabundin ráðning væri eðlileg enda í samræmi við niðurstöðu fræðslu- og uppeldisnefndar og starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar.
Hörður Guðbrandsson
15. 1001038 - Breyting á nefndarskipan bæjarins.
Atvinnumálanefnd
Í stað Jovönu Stefánsdóttur kemur Páll Valur Björnsson sem aðalmaður og Helga Kristjánsdóttir sem varamaður.
Almannavarnarnefnd, fulltrúar Björgunarsveitarinnar
Jón Valgeir Guðmundsson aðalmaður í stað Ólafs Þ.Þorgeirssonar og til vara Björgvin Björgvinsson í stað Boga Adolfssonar.
Samþykkt samhljóða
16. 0904007 - Endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur
Til máls tók: Bæjarstjóri
Tillaga
Bæjarstjórn samþykkir kostnaðaráætlanir við gerð aðalskipulags frá Eflu og Vinnustofunni Þverá.
Bæjarstjórn leggur áherslu á að aðalskipulag klárist fyrir lok apríl. Byggingafulltrúa falið að sækja um endurgreiðslu á kostnaði.
Samþykkt samhljóða
17. 0809017 - Víkurbraut 62 - Skipulag á þriðju hæð
Til máls tóku: Bæjarstjóri, Gunnar Már, Petrína og Sigmar
Bæjarstjórn samþykkir samninginn að fjárhæð 43.606.260 kr. með virðisaukaskatti.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Gunnar Már situr hjá.
18. 0912056 - Minnisblað viðhaldsáætlunar yfir gatnakerfi, unna af Hlaðbær Colas hf.
Bæjarstjórn þakkar fyrir framlag Hlaðbæjar Colas en sér sér ekki fært að verða við erindinu.
19. 0912066 - Varðar dælubrunn við hafnarhús
Til máls tók: Hörður
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að setja upp dælubrunn á hafnarsvæði.
20. 0911089 - Verk- og arkitektaþjónusta vegna skjala- og teikningaumsýslu f. Grindavíkurbæ
Til máls tók: Bæjarstjóri
Bæjarstjórn samþykkir erindið samhljóða.
21. 0911068 - Gangstétt í Asturhópi, Grindavík.
Til máls tóku: Hörður
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að veita 12.000.000 kr. til gangstéttagerðar í fjárhagsáætlun 2010.
22. 0911040 - Bæjarlistamaður Grindavíkur
Til máls tók: Hörður
Bæjarstjórn samþykkir reglurnar.
Bæjarstjórn þakkar menningar- og bókasafnsnefnd fyrir vinnu við reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Grindavíkur. Ekki er gert ráð fyrir starfsstyrk til bæjarlistamanns í fjárhagsáætlun 2010.
Reglurnar eru samþykktar samhljóða
23. 0911039 - Menningarverðlaun
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um menningarverðlaun Grindavíkur og þakkar nefndinni gerð reglanna.
24. 0911003 - Félagsaðstaða.
Lagt fram.
25. 0910065 - Gæsla vegna íþróttakennslu í grunnskólanum
Bæjarstjórn samþykkir tillögu forstöðumanns íþróttamannvirkja
26. 0910059 - Breytingar á sal bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn sér sér ekki fært að verða við erindinu.
Gunnar Már vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Samþykkt með 5 atkvæðum, Petrína situr hjá
27. 0910048 - Hugmyndir um samstarf samtakanna Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs (GFF) og Grindavíkur árið 2010 og óskir um fjárstuðning það ár.
Bæjarstjórn hafnar erindinu samhljóða.
28. 0910023 - Greiðslur til foreldra í stað leikskólavistar eða dagvistar
Til máls tók: Garðar
Tillaga
Lagt er til að hafna erindinu.
Tillagan er samþykkt með 3 atkvæðum, Petrína og Gunnar Már sitja hjá, Garðar á móti
29. 0908031 - Beiðni um styrk til endurnýjunar glugga á vesturhlið Grindavíkurkirkju.
Til máls tóku: Björn, Garðar og Sigmar
Bæjarstjórn hafnar erindinu með 6 atkvæðum, Petrína situr hjá.
30. 0908030 - Beiðni um áframhald á styrk vegna organista Grindavíkurkirkju.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn að fjárhæð kr. 1.840.000
31. 0908029 - Áframhaldandi samstarf Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju um æskulýðsstarf.
Bæjarstjórn samþykkir að veita kr. 450.000 til samstarfs Grindavíkurkirkju og Grindavíkurbæjar á árinu 2010, en hafnar að gera samning um æskulýðstarf til þriggja ára með 6 atkvæðum, Björn situr hjá.
32. 0904058 - Skólastefna Grindavíkur- drög að verkáætlun.
Lagt fram.
33. 0910012 - Fjárhagsáætlun 2010
Til máls tóku: Bæjarstjóri, Guðmundur, Petrína, Garðar, Sigmar og Hörður
Bókun
Rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs, þ.e. A-hluta er áætluð 233,8 milljón kr. í tap. Vegur þar þyngst að nýr grunnskóli kemur inn í rekstur í fyrsta skipti. Auk þess lækka vaxtatekjur af bankainnistæðu verulega frá árinu 2009. Í samanteknum reikningsskilum er gert ráð fyrir tapi að fjárhæð 296,3 milljónir króna.
Heildareignir í samanteknum reikningsskilum eru áætlaðar í árslok 2010, 7.631,9 milljónir kr. Þar af er áætlað að innlán standi í 2,9 milljörðum kr. í árslok 2010.
Heildarskuldir og skuldbindingar eru áætlaðar 3.036,6 milljónir kr. Þar af er lífeyrisskuldbinding um 415,1 milljón króna. Langtímaskuldir eru áætlaðar 2.258,0 milljónir króna í árslok 2010.
Veltufé frá rekstri í samanteknum reikningsskilum árið 2010 er áætlað 186 milljónir kr.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er áætluð 531 milljón króna og afborganir langtímalána eru áætlaðar 250,7 milljónir króna.
Tillaga
Lagt er til að þjónustugjaldskrá hafnarinnar hækki um 10% frá 1. janúar 2010. Auk þess er lagt til að hækka aflagjald úr 1,4% í 1,6% frá 1. febrúar 2010.
Samþykkt samhljóða
Tillaga
Bæjarstjórn leggur til að laun bæjarfulltrúa og nefndarlaun lækki um 10% frá og með 1. febrúar 2010.
Samþykkt samhljóða
Fjárhagsáætlunin er samþykkt samhljóða
34. 1001023 - Þriggja ára áætlun 2011-2013
Til máls tóku: Bæjarstjóri og Gunnar Már
Samþykkt samhljóða að vísa þriggja ára áætlun 2011-2013 til síðari umræðu í bæjarstjórn
35. 0912011F - Skipulags- og byggingarnefnd Grindavíkur - 509
Til máls tók: Hörður
1. liður. Samþykkt samhljóða að veita byggingaleyfi Bakkalág 17
36. 0912006F - Bæjarráð Grindavíkur - 1222
Til máls tóku: Guðmundur og Gunnar Már
Fundagerðin lögð fram til kynningar á fundi bæjarstjórnar nr. 392.
37. 0912009F - Bæjarráð Grindavíkur - 1223
Til máls tóku: Guðmundur og Gunnar Már
Fundagerðin lögð fram til kynningar á fundi bæjarstjórnar nr. 392.
38. 1001002F - Bæjarráð Grindavíkur - 1224
Til máls tóku: Guðmundur og Gunnar Már
Fundagerðin lögð fram til kynningar á fundi bæjarstjórnar nr. 392.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:20
Hörður Guðbrandsson (S)
Sigmar Eðvarðsson (D)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Garðar Páll Vignisson (V)
Björn Haraldsson (V)
Petrína Baldursdóttir (B)
Gunnar Már Gunnarsson (B)






